staða bólusetninga og sóttvarnaráðstafana, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin og ég er sammála henni um að það skiptir máli hvernig umræðan um bólusetningar hefur almennt verið hér á landi. Það hefur áhrif á þessum tímapunkti á það hvernig við förum inn í þessar bólusetningar. Svo vona ég að það sé rétt mat hjá hæstv. ráðherra, og hef reyndar enga ástæðu til að halda annað, að ungt fólk vilji fara í bólusetningu, að það sé sterkur hvati til þess. Ég held hins vegar að það sé mjög brýnt að halda áfram að hamra á mikilvægi þess að allir fari í bólusetningu um leið og þeim býðst það.
Í ljósi þess hversu góð staðan er á Íslandi hvað faraldurinn sjálfan varðar leyfir maður sér að hugsa svolítið fram í tímann og þess sem gerist svo að loknum faraldrinum, af því að nú erum við kannski ekki í sama bráðaástandi og við vorum í hér fyrir nokkrum mánuðum, hvað þá ári. Mig langar að biðja hæstv. ráðherra um að fara aðeins yfir það á hverju hún telur að við þurfum að hafa fókusinn á því tímabili þegar bólusetningar eru orðnar almennar. Faraldurinn sem slíkur er kannski ekki megináhyggjuefni landsmanna, en við þurfum að vinna úr því sem gengið hefur á síðasta rúma árið. Hvar telur hæstv. ráðherra að við þurfum að hafa fókusinn sérstaklega?