staða bólusetninga og sóttvarnaráðstafana, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Þrátt fyrir allt erum við á réttri leið. Bólusetningum fjölgar hratt og örugglega og hjól atvinnulífsins nálgast eðlilegan snúning. Við horfum fram á bjartari tíma, sólin hefur heldur betur látið sjá sig. Við erum farin að sjá fleiri ferðamenn og sjálf erum við farin að sitja úti að snæðingi, en maður var orðinn vonlaus um að það gengi nokkurn tímann eftir. En svona er nú lífið. Vorið kemur.
Það er ekki sjálfgefið að bólusetningar gangi eins vel og þær hafa gert, en næstum einn þriðji einstaklinga 16 ára og eldri er fullbólusettur. Þá hefur sú umræða aðeins komið upp að það sé mismunandi gangur í þessu eftir landshlutum. Er tekið eitthvert test öðru hvoru, er tékkað á því hvort ekki sé samræmi þar á milli? Maður hefur heyrt að Heilbrigðisstofnun Norðurlands sé svolítið á eftir Vestfjörðum og okkur hér fyrir sunnan. En svo þegar við erum komin að leiðarlokum, og ég vona að þetta sé með síðustu skýrslum heilbrigðisráðherra varðandi Covid, megum við samt ekki gleyma þessu tímabili. Nú höfum við gengið hratt og gríðarlega vel í gegnum þennan tíma. Við höfum lært rosalega margt, bæði í pólitíkinni, á heilbrigðisstofnunum og annað. Mig langar því að spyrja hæstv. heilbrigðisráðherra: Verður ekki tryggt að þessi reynsla og þessi lærdómur komi sér vel í heilbrigðiskerfinu? Er eitthvert ákveðið utanumhald um þetta, að þetta komi til með að nýtast okkur sem allra best í sem flestu á næstu árum og í næstu faröldrum, sem vonandi verður aldrei?