staða bólusetninga og sóttvarnaráðstafana, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að fara yfir skýrslubeiðnina. Það er auðvitað afar mikilvægt og er hluti af því, hér var áður spurt í umræðunni hvernig við myndum gera faraldurinn upp, að við horfumst í augu við þennan þátt sem er sú staðreynd að meðan heilbrigðiskerfið okkar er fyrst og fremst í því að sinna Covid með beinum og óbeinum hætti þá finnum við náttúrlega fyrir því að verkefni safnast upp sem ella hefðu verið unnin. Við gerum ráð fyrir því að þessi skýrsla verði komin til þingsins ef ekki í þessari viku þá í næstu, alveg örugglega áður en þingið fer heim. Ég hef ekki séð skýrsluna í drögum en ég veit að hún er komin á lokametrana í ráðuneytinu. Mig langar að nefna, af því að við hv. þingmaður höfum svo oft rætt hér um liðskiptaaðgerðir, að gert er ráð fyrir því að með viðbótarskurðstofu á Heilbrigðisstofnun Vesturlands, sem verið er að undirbúa, verði hægt að framkvæma þar um 430 aðgerðir á ári. Þar er áætlað að Liðskiptasetrið á Akranesi verði tekið í gagnið 2022. Þá erum við í raun komin með það utanumhald sem við viljum sjá, að við getum verið að vinna á liðskiptabiðlistum og náum þeim markmiðum sem við viljum ná varðandi biðtíma í þær.