staða bólusetninga og sóttvarnaráðstafana, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra kærlega fyrir. Við erum örugglega sammála því að það ber að taka á biðlistum og ég held að það sé hið besta mál. Ég held að það sé mjög gott ef við náum að ræða þessa skýrslu fyrir þinglok vegna þess að við þurfum líka að taka á afleiðingum bólusetninga. Nú spyr ég hæstv. ráðherra: Hefur eitthvað verið spáð í það að safna upplýsingum um afleiðingar fyrir þá sem hafa lent í slysum, eru með áverka og annað? Ég hef orðið var við það á mínum eigin skrokki, ég fékk AstraZeneca, að ég var í heilan mánuð að jafna mig, en ég var svo heppinn að ég var í sjúkraþjálfun, og ég veit um aðila sem eru ekki búnir að jafna sig enn eftir mánuð, einmitt á þeim svæðum þar sem þeir eru illa skaddaðir út af slysum eða öðru. Þetta er eitt sem við þurfum að kortleggja og væri gott upp á framtíðina þannig að hægt væri að reikna með því að taka tillit til þessara einstaklinga þegar næstu bólusetningar verða.