151. löggjafarþing — 104. fundur,  1. júní 2021.

staða bólusetninga og sóttvarnaráðstafana, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[15:30]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurningarnar. Í fyrsta lagi um það hvenær við erum komin með það sem kallað er hjarðónæmi. Þetta er eitt hugtak úr þessari nýju orðabók sem við eignuðumst í gegnum Covid. Nú tölum við bara eins og ekkert sé eðlilegra um sóttkví og hjarðónæmi og hvað það allt saman er. Þegar sóttvarnalæknir talar um hjarðónæmi þá nefnir hann gjarnan tvær tölur. Hann nefnir annars vegar 80% af fullorðnum eða 60% af samfélaginu öllu þannig að það fer svolítið eftir því hver viðmiðunarpunkturinn er og það skiptir máli. En það verður auðvitað svolítið spennandi að sjá, þegar við erum að fara meira tilviljanakennt inn í yngri hópana, hvaða áhrif það hefur á útbreiðsluna meðal ungs fólks. Enn virðumst við vera að ná nokkuð góðum tökum á hópsmitunum. Þessar veirur sem eru að dúkka upp í samfélaginu virðast ekki ná mikilli fótfestu, sennilega vegna þess að við erum búin að koma viðkvæmustu hópunum okkar og elsta fólkinu okkar í skjól. Það er eins og veiran finni ekki, hvað á ég að segja, kröftum sínum viðnám af því að það eru það margir orðnir bólusettir.

Hv. þingmaður spyr um og veltir upp þessu dýrmæta samstarfi opinberra aðila og einkaaðila í gegnum Covid. Það er auðvitað hárrétt og þá sérstaklega og fyrst og fremst Íslensk erfðagreining, vísindaþekkingin sem þar er innan borðs og áherslan á það að raðgreina hvert einasta Covid-smit á Íslandi. Þar skipum við Íslendingar okkur í algjöran sérflokk, að geta skoðað smit hvers og eins með svona nákvæmum hætti. Það hefðum við ekki getað gert öðruvísi en með samstarfi opinberra aðila og Íslenskrar erfðagreiningar og fyrir það verður seint fullþakkað.