151. löggjafarþing — 104. fundur,  1. júní 2021.

staða bólusetninga og sóttvarnaráðstafana, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. - Ein umræða.

[15:34]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Það fylgir því hátíðleg stemning að svara í síðasta skiptið fyrir tíundu skýrsluna. Ég vil segja það, af því hv. þingmaður veltir upp valkvæðum aðgerðum sem voru stoppaðar á tímabili samkvæmt ábendingu landlæknis, að þær voru í raun líka stoppaðar hjá einkaaðilum. Það er vegna þess að spítalinn er alltaf sá staður sem gripið er til ef eitthvað fer úrskeiðis og þess vegna þurfti að stoppa þær í kerfinu öllu. Hv. þingmaður spyr sérstaklega um lýðheilsusjónarmið. Þau eru mjög mikilvæg og við erum að vakta sérstaklega lýðheilsuáhrif af Covid en ég hlakka líka mikið til að sjá Alþingi klára og afgreiða lýðheilsustefnu sem mun verða okkur leiðarvísir inn í framtíðina því að lýðheilsusjónarmið eru gríðarlega mikilvæg (Forseti hringir.) og ekki síst þegar við erum að spyrna okkur frá botni eftir glímuna við Covid.