fjáraukalög 2021.
Virðulegur forseti. Ég vil hér í þessari fyrstu ræðu minni um frumvarp til fjáraukalaga árið 2021 aðeins nefna þau atriði sem ég tel nauðsynlegt að hv. fjárlaganefnd taki til skoðunar þegar málinu hefur verið vísað þangað. Ég ætla að koma inn í greinargerð um einstaka málaflokka þar sem fyrst er tekið á málaflokki 10.4, stjórnsýslu dómsmálaráðuneytis. Þar er lagt til, með leyfi forseta:
„… að fjárheimild málaflokksins verði aukin um 200 millj. kr. vegna stuðnings við starfsemi Rauða krossins á Íslandi og Slysavarnafélagsins Landsbjargar, en um er að ræða almannaheillafélög sem hafa gegnt mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi“, eins og segir í greinargerð frumvarpsins.
Ástæða þess að ég nefni þetta sérstaklega er að í efnahags- og viðskiptanefnd er verið að vinna frumvarp akkúrat núna sem tekur á starfsumhverfi almannaheillafélaga. Ef lesið er í gegnum þær umsagnir sem borist hafa virðist gagnrýnin beinast að miklu leyti að því að verið sé að reyna að þvinga öll þessi almannaheillafélög í sama módelið. Þau þurfi að sinna sömu skriffinnskunni sama hverrar gerðar félagið er og þar fram eftir götunum. Ég sé ástæðu til að nefna þetta í þessu samhengi af því að hér er verið að setja inn viðbótarfjárveitingu upp á 200 millj. kr. til þessara tveggja ágætu félagasamtaka. Við verðum að gæta þess þegar við skoðum regluverk almannaheillafélaga að drifkrafturinn, frumkvæðið og broddurinn í starfseminni, koðni ekki niður vegna regluverks opinberra aðila þar sem, eins og virðist vera að gerast með þetta frumvarp hæstv. fjármálaráðherra, verið er að ýta félögum inn í það að vera einsleit og áhersla á skriffinnsku virðist verða miklu meiri en þessi félög telja skynsamlegt og réttlætanlegt hvað þeirra eigin afl varðar. Ég mun nú koma þeim upplýsingum til fulltrúa Miðflokksins í hv. nefnd. Þetta er þekkt vandamál, m.a. frá Bandaríkjunum, þar sem almannaheillafélög og sjálfboðaliðasamtök hafa beinlínis koðnað niður vegna reglusetningar sem var í rauninni forsenda þess að einhver opinber stuðningur kæmi í þá átt. Fram að þeim tíma höfðu viðkomandi félög verið að meginhluta drifin áfram af sjálfboðaliðastarfi og hugsjón. En eins og með svo margt annað, eins og maður hefur áhyggjur af varðandi fjölmiðlana núna, þegar menn eru komnir á ríkisjötuna og ofurseldir skriffinnskunni sem þar þykir tilhlýðileg til að njóta styrkja úr opinberum sjóðum, þá fer allur drifkraftur og hugsjónin verður mikið fjarlægari. Þetta verður meiri bisness. Ég vildi nefna þetta í þessu samhengi.
Ég ætla að geyma mér málaflokk 11, samgöngu- og fjarskiptamál, til loka ræðu minnar.
Næst vil ég koma inn á lið 14.1, ferðaþjónustu, þar sem sagt er, með leyfi forseta:
„Lagt er til að fjárheimild málaflokksins verði hækkuð um 750 millj. kr. til að fjármagna Ferðagjöf II.“
Þar sem þetta frumvarp var lagt fram á Alþingi fyrir — ja, var það ekki bara lagt fram í gær? Alla vega kom það úr prentun fyrir helgi þannig að ekki geta upplýsingarnar verið gamlar í þessu plaggi. En hér segir, með leyfi forseta:
„Heildarkostnaður vegna Ferðagjafar II gæti mest orðið 1,4 milljarðar kr., miðað við að allir sem eiga rétt á ferðagjöfinni nýti hana. Til viðbótar við þær 750 millj. kr. sem nú er óskað eftir er áætlað að 650 millj. kr. verði fjármagnaðar með því að heimila nýtingu á óráðstafaðri fjárheimild síðasta árs, sem var veitt vegna kynningar- og markaðsátaks innan lands í ferðaþjónustu.“
Er þá þarna verið að ræða um 650 milljónir sem eru ónýttar úr þeim lið eða var verið að horfa til þess að það væri svona há fjárheimild enn til ráðstöfunar frá Ferðagjöf I? Mér sýnist það ekki ganga upp miðað við þær upplýsingar sem komið hafa fram í morgun um mikla nýtingu Ferðagjafar I á síðasta degi, í gær. Ef ég greip fréttina rétt voru það rétt um 80 milljónir þannig að mér telst til að það ættu ekki að vera nema tæpar 80 milljónir eftir af þeirri heildarfjárveitingu. En bara þannig að þetta liggi fyrir, hvað veldur því að þær 650 milljónir, sem voru áætlaðar til kynningar- og markaðsátaks í ferðaþjónustu innan lands, voru ekki nýttar? Var eitthvað í markaðsaðstæðum sem olli því? Var það bara vegna þess að Íslendingar ferðuðust meira að eigin frumkvæði en reiknað var með? Það er rétt að það verði skoðað.
Síðan langar mig að koma inn á lið 25.1, hjúkrunar- og dvalarrými. Þar er segir, með leyfi forseta,
„Lagt er til að 1.000 millj. kr. aukafjárheimild verði veitt til málaflokksins vegna tímabundinnar hækkunar daggjalda til hjúkrunarheimila.“
Við þekkjum auðvitað öll þá sögu sem hér hefur verið rakin ítarlega og oft varðandi stöðu hjúkrunarheimila og rekstrarskilyrði þeirra. Það hefur legið fyrir lengi að daggjöldin standa ekki undir þeim kostnaði sem hlýst af starfseminni. Því er oft flaggað að það sé vegna breytinga á aldurssamsetningu þjóðarinnar og þess hversu mikið veikari íbúar þessara heimila séu nú en þau voru fyrir einhverjum árum síðan.
Um það vil ég segja að það er sennilega fátt í samfélagi okkar sem er fyrirsjáanlegra en aldursþróun þjóðarinnar. Ef þetta er raunin, að menn, sem þessum málum stýra, hafi einhvern veginn sofið á verðinum þá er það auðvitað mjög alvarlegt. Ég held að það sé miklu líklegra að kíkirinn hafi verið settur fyrir blinda augað og menn ákveðið að takast ekki á við það vandamál sem blasti við. Sá milljarður sem hér er settur inn er algerlega nauðsynlegur, bara til að gefa þeim fyrirtækjum sem enn starfa á þessum markaði og sveitarfélögum sem ekki hafa sagt upp þjónustusamningum sínum, svigrúm til að eiga einhvern möguleika á að troða marvaða til þess tíma að einhver vitræn nálgun verði á þessa þætti því að það blasir við eftir skýrslu hóps sem Gylfi Magnússon, fyrrverandi ráðherra, fór fyrir og var skilað til ráðherra fyrir ekki löngu síðan, að málið er allt þeirrar gerðar að kerfið er ekki sjálfbært. Auðvitað er þetta margþætt en það hefur legið fyrir lengi og þróun hefur ágerst, að vistmenn séu eldri og meira veikir þegar þeir koma inn á hjúkrunarheimilin. Þessi þróun fellur ekkert af himnum ofan þannig að ég hvet heilbrigðisráðuneytið og fjármálaráðuneytið um leið til þess að hraða þeirri vinnu eins og nokkur kostur er sem er hér flaggað og raunar er sett inn sem skilyrði fyrir hækkuninni, með leyfi forseta:
„Skilyrði fyrir hækkuninni er að rekstraraðilar hjúkrunarheimila samþykki tveggja mánaða framlengingu þjónustusamninga þannig að þeir gildi til loka febrúar 2022. Gangi það eftir verður daggjaldið hækkað fyrir yfirstandandi ár en hækkunin gengur til baka í byrjun næsta árs.“
Skriffinnskulegri og harðneskjulegri gæti textinn hreinlega varla orðið. Því er beinlínis flaggað hér að undirgangist menn það ekki að framlengja samninginn, sem er þeirrar gerðar að hann sýgur allt líf og alla fjármuni innan úr þessum stofnunum, þá fái menn ekki neitt. En gangi það eftir, sem sagt framlengingin, verður daggjaldið hækkað fyrir yfirstandandi ár, en hækkunin gengur til baka í byrjun næsta árs.
Auðvitað eru þarna einhverjir samningar sem verið er að reyna að ná saman um, en reynslan sýnir okkur, því miður, að það er sjaldnast, ef nokkurn tímann, sem slíkir samningar nást á áætlun og alls ekki samningar sem heilbrigðisráðuneytið tengist þessi árin, alls ekki. Þá má bara vísa til sérfræðilækna og þeirrar stöðu sem þar er uppi. Þannig að ég vil skora á heilbrigðisyfirvöld og fjármálaráðuneytið að taka á þessu máli með forsvaranlegri hætti en verið hefur undanfarið.
Hér segir áfram um þetta, með leyfi forseta:
„Samningar Sjúkratrygginga Íslands við rekstraraðila hjúkrunarheimila renna út í árslok og er vinna að hefjast við gerð samningsmarkmiða næstu samninga.“
Það er kominn júní. Samningarnir renna út um áramót. Vinna er að hefjast við gerð samningsmarkmiða næstu samninga. Í millitíðinni mun kerfið meira og minna allt fara í frí og það verður kosið og ég veit ekki hvað. Það er ekkert sem bendir til þess að samningar verði kláraðir í tíma þannig að einhver samfella verði í þessum efnum.
Hér langar mig að koma stuttlega inn á 11. lið, samgöngu- og fjarskiptamál. Það eru ekki stórar tölur þar sem um ræðir en prinsippið er kannski stærra. Þar er lagt til að fjárheimild málefnasviðsins verði aukin um 120 milljónir og eins og segir hér, með leyfi forseta:
„Lagt er til að fjárheimild málaflokksins verði aukin um 120 millj. kr. vegna tímabundins stuðnings ríkisins við Strætó bs. vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins. Strætó er í eigu sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og er stærsta fyrirtækið í almenningssamgöngum innan lands, hvort sem litið er til veltu eða farþegafjölda. Árleg velta nemur um 8–9 milljörðum kr. Frá árinu 2012 hefur ríkissjóður styrkt Strætó bs. um u.þ.b. 900 millj. kr. á ári á grundvelli samnings um tíu ára tilraunaverkefni til eflingar almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu.“
Af því að formaður fjárlaganefndar stendur hér í dyragættinni og ég reikna með að málinu verði vísað þangað, væri áhugavert að skoðað yrði hvort þessi samningur hafi verið framlengdur nýlega, hvort ríkið sé búið að binda sig í áframhaldandi greiðslu, 900 milljónir á ári, á grundvelli þess samnings sem gerður var 2012. Það fer tvennum sögum af því. Mér hefur heyrst hæstv. samgönguráðherra tala á þeim nótum að samningurinn hafi verið framlengdur en svo hef ég fengið afsvar um það úr öðrum áttum. Bara þannig að nefndin skoði við vinnslu málsins hvort þessi samningur hafi verið framlengdur og þá hvernig sú ákvörðun var tekin, því að mér finnst það skipta máli í þessu samhengi.
En undir lok ræðu minnar vil ég halda því til haga að hérna er ríkið að bæta við stuðning til Strætó bs. og það er verið að gera um allt kerfið hjá okkur núna. Það er margt gagnrýniverðara en akkúrat þessi fjárveiting. En það breytir því ekki að því verður að halda til haga að hér var gerður samningur, svokallaður samgönguáttmáli höfuðborgarsvæðisins, undirritaður 26. september 2019, minnir mig að hafi verið. Þar er alveg augljóst að samningsaðilar horfa ólíkum augum á stuðning ríkisins við almenningssamgöngur hvað rekstur almenningssamgangna varðar. Það er ekki nokkur leið að fá fulltrúa sveitarfélaganna til að staðfesta þann skilning, sem kemur þó fram í framhaldsnefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar í tengslum við það frumvarp sem leyfði stofnun Betri samgangna ohf., sem heldur utan um verkefni, samgöngusáttmálans og uppbyggingu svokallaðrar borgarlínu. Í því framhaldsnefndaráliti er alveg skýrt að rekstur borgarlínu og tengdra þátta verður ekki á forsvari ríkissjóðs. En að reyna að fá fulltrúa sveitarfélaganna sem að samningnum koma til að staðfesta þann skilning gengur ekki vel, og alls ekki fulltrúa Reykjavíkurborgar. Þannig að ég vil bara slá þann varnagla hér að fjárlaganefnd, hæstv. fjármálaráðherra og vörslumenn ríkissjóðs, láti ekki draga sig út í það fen að opna fyrir þann krana óhindraðan sem rekstur svokallaðrar borgarlínu verður að líkindum, verði sú framkvæmd einhvern tímann að raunveruleika.