fjáraukalög 2021.
Frú forseti. Þótt það sé ekki í þessu frumvarpi til fjáraukalaga þá minntist hv. þingmaður á fjölmiðla og þá ráðstöfun ríkisstjórnarinnar að greiða einkareknum fjölmiðlum styrki og ýjaði að því, að mér fannst, að hálft í hvoru væri verið að gera ríkisstarfsmenn úr fjölmiðlamönnum á einkareknum fjölmiðlum. Það hefur svo sem verið í málflutningi Miðflokksmanna hingað til að þá verði þeir komnir undir hæl ríkisins eða eitthvað því um líkt. Mig langar að spyrja hv. þingmann út frá því: Telur hann það í alvörunni, miðað við styrkjakerfið eins og það er í Noregi, Svíþjóð og Danmörku til einkarekinna fjölmiðla, í Finnlandi líka? Eru allir fjölmiðlar þar undir hæl hins opinbera og fylgja bara einhverri opinberri línu um það hvernig eigi að stunda fréttaflutning og þess háttar? Mér finnst þetta dálítið mikilvægt. Það er hægt að gagnrýna þá útfærslu sem ríkisstjórnin kom með fram og til baka, enda var það svona það minnsta og lélegasta í rauninni sem væri hægt að taka úr styrkjakerfi fjölmiðla á öðrum Norðurlöndum. En ég velti fyrir mér hvort þessi málflutningur standist skoðun, að það að styrkja einkarekna aðila með opinberu fé geri þá einhvern veginn háða hinu opinbera á einhvern ómálefnalegan hátt eða málefnalegan hátt, á þann hátt að þeir breyti starfsaðferðum sínum.