151. löggjafarþing — 104. fundur,  1. júní 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[15:53]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Blaðamenn eru auðvitað bara venjulegt fólk eins og við þingmenn, mismunandi og margs konar. Eigendur fjölmiðla eru það sömuleiðis og ritstjórnir auðvitað sömuleiðis. Það er ómögulegt að setja mælistiku á það akkúrat hvað orsakar breytta hegðun. Það er bara mannlegt eðli. Ég tók þetta dæmi um fjölmiðlana í samhengi við almannaheillafélögin sem ég nefndi í ræðunni og tók þá tilhneigingu að ríkisvæða fleiri þætti samfélagsins en ég tel skynsamlegt. Það að ríkisvæða, setja einkamiðlana á ríkisjötuna með þeim hætti sem þarna var gert, tel ég óskynsamlegt, eins og ég hef reyndar margítrekað í ræðum. Margar betri leiðir eru færar með almennum aðgerðum, skattalegum og m.a. líka því að minnka flækjustig þess umhverfis sem fjölmiðlarnir starfa innan. Ég skildi spurningu hv. þingmanns þannig að hann væri að spyrja um einstaklingana, fjölmiðlamennina sjálfa, ekki fyrirtækin. Ég er ekki í neinni stöðu til að kveða upp úr um hvort þetta hafi áhrif á þá. Ég tel mjög óskynsamlegt, og í því samhengi vitna ég til fjölmiðlastyrkjanna sem eru nýsamþykktir hér, að við förum sömu leið hvað almannaheillafélögin varðar, ekki hvað varðar skattumhverfið eða styrkina heldur það að setja þá í þetta format sameiginlegrar skriffinnsku þannig að þau þurfi öll að nálgast mál með sambærilegum hætti því þau eru jafn ólík og einstaklingarnir eru.