151. löggjafarþing — 104. fundur,  1. júní 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[15:56]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Við kaupum ákveðna þjónustu af ýmsum almannaheillafélögum til að sinna ákveðinni réttindastarfsemi, t.d. gagnvart ríkinu. Fjölmiðlar gera það að vissu leyti líka þannig að það er ágætt að niðurstaðan sé sú að ekki sé hægt að fullyrða að verið sé að kaupa fjölmiðlamenn. Ég held að það sé það síðasta sem þeim dytti sjálfum í hug að yrði gert þó að frumvarp ríkisstjórnarinnar sé eiginlega frekar í þá átt minnka óvissuna sem eigendurnir þurfa að skrifa út á hallarekstur málgagna sinna. Miðað við afskipti af ritstjórnarstefnu o.s.frv. hef ég fulla trú á blaðamönnunum sjálfum, það er áhugaverður munur þar á.

Aðeins að borgarlínunni. Hv. þingmaður talaði einnig um borgarlínu, hvort hún skyldi nú nokkurn tímann verða að veruleika o.s.frv. Ég velti fyrir mér enn og aftur, miðað við allar þær valkostagreiningar sem við höfum haft í samgöngum á höfuðborgarsvæðinu, af hverju ættum við að velja einhverja aðra leið en borgarlínu, miðað við niðurstöður þeirra valkostagreininga sem við höfum séð? Vissulega þurfum við að laga okkur jafnt og þétt að breyttum tækninýjungum og þess háttar en það er ekkert sem bendir til þess að nákvæmlega þessi útfærsla rúmi ekki tækninýjungaþróun og fleira í þá áttina. Allir aðrir valkostir sem stóðu til boða voru dýrari og afköstuðu ekki eins miklu. Ég velti fyrir mér af hverju andstaðan er á þennan hátt ef það eru engin gögn til að hrekja alla vega þær valkostagreiningar sem við höfum nú þegar.