151. löggjafarþing — 104. fundur,  1. júní 2021.

fjáraukalög 2021.

818. mál
[16:00]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V) (andsvar):

Forseti. Mig langar að taka aðeins upp þráðinn úr ræðu hv. þingmanns þar sem hann gerði að umtalsefni hjúkrunarheimili og fjármögnun þeirra. Hann fór ágætlega yfir það sem um þau mál segir í áætluninni og þennan milljarð sem leggja á til heimilanna. Hv. þingmaður fór líka ágætlega yfir það sem ég tek undir með hv. þingmanni að er dálítið sérkennileg aðferðafræði hjá stjórninni, að skilyrða þessa fjárveitingu og nánast segja: Ef þið hlýðið þessu ekki þá fáið þið ekki þetta framlag.

Að þessi fjárhæð skuli sett inn þarna er jú er góðra gjalda vert. En komið hefur fram mjög ríkt í máli þeirra sem reka þessi heimili, hvort sem það eru einkaaðilar eða sveitarfélögin, að þau geta ekki staðið undir þeim þjónustukröfum sem gerðar eru af landlækni þannig að flestöll þessi heimili veita lakari þjónustu en ætlast er til af þeim. Svar þeirra er fyrst og fremst það að fjármagnið sé ekki nóg.

Það sem ég velti fyrir mér er: Hvernig stendur á því að menn taka ekki betur á þessum vanda, því að nú hefur hann blasað við svo lengi? Ég velti fyrir mér hvort það kunni að vera einhver ástæða sem gæti falist í því að hluti þessara heimila er í einkarekstri á daggjöldum frá ríkinu, (Forseti hringir.) hvort það sé hugsanlegt að það sé einhver stefna í gangi (Forseti hringir.) að hrekja þessi heimili öll meira og minna í fang ríkisins.