atvinnuleysistryggingar og greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.
Forseti. Ég tek undir með þeim sem töluðu á undan mér og er með á þessari breytingartillögu minni hlutans sem snýr að því að tryggja að námsmenn fái atvinnuleysisbætur. Þetta er gríðarlega mikilvægt mál. Við megum ekki leyfa hópum að falla á milli skips og bryggju í þessum aðgerðum og það hefur ekki verið komið nægilega til móts við námsmenn. Við í Pírötum styðjum þessar aðgerðir, framlengingar á þessum aðgerðum. En á sama tíma finnst mér mikilvægt að fram komi að ég bað í nefndinni um að fá upplýsingar frá ráðuneytinu um árangur þessara aðgerða áður en við færum að framlengja þær, hver árangurinn væri raunverulega af þeim aðgerðum sem á að framlengja. Ég fékk engin svör. Ég veit ekki hvort það er hreinlega út af því að ráðuneytið hefur ekki haft tíma til að senda svör eða hvort þessar upplýsingar liggi ekki fyrir, ég veit það ekki. Ég vona svo innilega að þær liggi fyrir en ég hef ekki séð árangurinn. Og það er ofboðslega erfitt að meta svona aðgerðir ef við höfum ekki aðgang að upplýsingum sem sýna okkur að þær beri árangur. Það er gríðarlega mikilvægt að við náum utan um námsmenn líka og það er óþolandi að svarið sé bara: Tölvan segir nei, út af einhverju. Við verðum að grípa utan um þennan mikilvæga hóp.