atvinnuleysistryggingar og greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.
Virðulegur forseti. Hér er um mjög gott mál að ræða. Við erum að framlengja tekjutengdar atvinnuleysisbætur og mæta íþróttafélögum og fleirum í þeim efnum. Það sem hér hefur verið nefnt varðandi námsmenn og atvinnuleysisbætur þá hefur ríkisstjórnin unnið að því að skapa störf fyrir námsmenn. Við teljum það vera betri leið til að mæta námsmönnum. Á síðasta sumri gengu ekki út um 500 störf sem stóðu til boða fyrir námsmenn. Núna lítur sumarið mjög vel út að þeirra sögn. Ríkisvaldið hefur líka skapað mörg sumarstörf fyrir námsmenn í sumar. Mikil ánægja er með það hjá námsmönnum hve mörg störf eru í boði, fyrir utan það að atvinnulífið er að fara af stað og kallar eftir hverri hönd til vinnu. Þar eru námsmenn eftirsótt vinnuafl. Það er auðvitað best fyrir alla að hafa vinnu. Erum við ekki sammála um það?