151. löggjafarþing — 105. fundur,  2. júní 2021.

atvinnuleysistryggingar og greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.

775. mál
[13:45]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég er á þessu nefndaráliti og þetta er ágætismál í sjálfu sér. En þess vegna er óskiljanlegt hvers vegna í ósköpunum við erum að láta námsmenn borga í sjóð og neita þeim svo um að fá greitt úr sjóðnum. Ég næ bara ekki svona hugmyndafræði. Hvers vegna í ósköpunum eiga þeir ekki þennan rétt? Við vitum að stór hópur námsmanna framfleytir sér á vinnu með skóla, eingöngu, og missti vinnuna í Covid. Hvers vegna í ósköpunum fá þeir ekki sömu réttindi, sem þeir eru búnir að vinna sér inn? Það er óskiljanlegt, og einkum af því að á að vera tímabundið.