151. löggjafarþing — 105. fundur,  2. júní 2021.

atvinnuleysistryggingar og greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.

775. mál
[13:47]
Horfa

Halldóra Mogensen (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Ég tek heils hugar undir með hv. formanni velferðarnefndar sem sagði eiginlega það sem mig langaði til að segja eftir þessa ræðu hv. þm. Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur áðan. Mig langar að bæta því við, varðandi það að vera stóryrt og taka sérstaklega fyrir atvinnulausa í einhverri herferð gegn svindli, að ég og fleiri í minni hluta velferðarnefndar munum koma með breytingartillögur milli 2. og 3. umr. þar sem við leggjum til að þessu verði breytt, þannig að litið verði til þess hvort starf hæfir starfsreynslu og menntun viðkomandi sem sækir um starfið. Það eru fréttir af því að 350 atvinnuleitendur hafi misst rétt til atvinnuleysisbóta tímabundið. Þetta er náttúrlega ólíðandi og nokkuð sem við verðum að laga, sérstaklega á þessum tímum. Við getum ekki verið að neyða fólk í störf sem henta þeim bara engan veginn. Það er ekki réttlætanlegt og það þarf að laga.