atvinnuleysistryggingar og greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.
Herra forseti. Ég verð að viðurkenna að ég varð dálítið hissa þegar ég heyrði hv. þm. Lilju Rafneyju Magnúsdóttur, sem er framsögumaður þessa máls fyrir hönd velferðarnefndar, segja að námsmenn segðu að sumarið liti mjög vel út. Það er bara alls ekki það sem stendur í umsögn Stúdentaráðs Háskóla Íslands við þetta mál, sem er bara tveggja vikna gömul. Þar áréttar Stúdentaráð kröfu sína um að námsmenn njóti trygginga Atvinnuleysistryggingasjóðs. Þar er ekki talað um að þau hafi engar áhyggjur, þvert á móti. En ef framsögumaður nefndarinnar í málinu, framsögumaður stjórnarflokkanna í málinu, túlkar þetta sem svo að það líti allt vel út fyrir námsmenn, sömu námsmenn og kom í ljós í Eurostudent-könnuninni að reiða sig, 70% þeirra, á vinnu með námi til að framfleyta sér og að þriðjungur þeirra glímdi á síðasta ári við alvarlegan eða mjög alvarlegan fjárhagsvanda — þetta heitir að skella skollaeyrum við, forseti. (Forseti hringir.) Þetta heitir jafnvel að vera óheiðarlegur í málflutningi. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)
(Forseti (SJS): Þetta er djúpt í árinni tekið.)