atvinnuleysistryggingar og greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.
Herra forseti. Mig langaði bara til að koma hér upp og benda á að í orðum hv. þm. Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur fólst allt að því hvatning til þingheims um að samþykkja þessa breytingartillögu um að hleypa námsmönnum nú að, vegna þess að ef staðan er sú að atvinnuástandið er svo gott að þeir eru meira eða minna allir með vinnu í sumar eru þetta svo fáir einstaklingar að það getur einfaldlega ekki skipt nokkru máli að hleypa þeim inn í þetta kerfi, sem þeir borga svo sannarlega í. Nema náttúrlega að skilaboð hv. þingmanns hafi verið þau að námsmenn muni ekki þiggja störf ef þeim stendur til boða að vera á bótum. Það eru kannski skilaboðin.