atvinnuleysistryggingar og greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.
Herra forseti. Ég vil koma hérna upp til að bera af mér sakir um að ég sé óheiðarleg í málflutningi. Það er hægt að meðtaka boðskap öðruvísi en bara í umsögnum. Þeir námsmenn sem komu fyrir nefndina sögðu að þeir hefðu áhuga á því að komast inn á atvinnuleysisbótakerfið. Þessi umræða hefur auðvitað verið lengi og hefur ekki verið samstaða um að þeir eigi að vera inni í því kerfi. Það hefur verið í umræðu milli verkalýðshreyfingarinnar og atvinnurekenda að námsmenn eigi ekki heima þar. En það hafa líka verið fréttir af því, og námsmenn sem ég hef hlustað á hafa komið í fréttir núna nýverið og talað um það, að sumarið líti mjög vel út og störfum sé að fjölga, atvinnulífið sé að fara af stað og það séu ekki áhyggjur varðandi atvinnuleysi í sumar. Það var ég að undirstrika í mínu máli.