151. löggjafarþing — 105. fundur,  2. júní 2021.

atvinnuleysistryggingar og greiðslur til íþróttafélaga vegna launakostnaðar og verktakagreiðslna á tímum kórónuveirufaraldurs.

775. mál
[13:52]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Mig langar að benda á að þetta á líka við t.d. um eldri borgara. Það er verið að taka skatt eða opinbert gjald af fólki fyrir vinnu þess sem á síðan samkvæmt lögunum að fara í það að borga því atvinnuleysisbætur ef það missir vinnuna. Þegar kemur að eldri borgurum, og í þessu tilfelli námsmönnum, þá er tekið gjald af þeim sem er ekki nýtt samkvæmt lögum ef þeir missa vinnuna. Ég get ekki séð hvernig það samræmist stjórnarskrá að gjöld séu tekin í þessum tilgangi af fólki en það nýtur ekki þeirra réttinda sem gjöldin eiga að skapa því. Það hreinasta í þessu væri annaðhvort, ef menn ætla að vera hreinir og beinir með þetta, að hætta að taka þennan skatt af námsmönnum og hætta að taka þennan skatt af eldri borgurum, eða þá að veita þeim þau fullu réttindi sem þessi skattur á að veita þeim. Annars sé ég ekki hvernig þetta stenst stjórnarskrá.