151. löggjafarþing — 105. fundur, 2. júní 2021.
þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnaður.
663. mál
Virðulegi forseti. Hér er um sjálfsagt réttlætismál að ræða sem varðar jafnræði sitjandi þingmanna sem eru í framboði og annarra frambjóðenda. En ég tel hins vegar að þetta varði jafnræði fleiri aðila vegna þess að nú geta ráðherrar þeyst um landið þvert og endilangt á bílum og með ráðherrabílstjóra sína. Ég tel að nefndin þurfi að skoða þetta örlítið betur á milli umræðna og fer því fram á að málið verði tekið aftur fyrir í nefnd milli umræðna.