151. löggjafarþing — 105. fundur,  2. júní 2021.

þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnaður.

663. mál
[13:59]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Að þessu máli samþykktu óbreyttu verður einn hópur manna og kvenna eftir í yfirburðastöðu í aðdraganda kosninga. Það eru ráðherrar. Ég gef lítið fyrir það að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, eða Alþingi, hafi fengið bréf frá ráðuneytisstjórunum þar sem tilkynnt er að breyting verði á högum ráðherra í kjölfar þess að þetta frumvarp verði samþykkt. Ég treysti því einfaldlega ekki og get því ekki stutt þetta mál. Nú fer í hönd tími borðaklippinga og skóflustungna og freistnivandi ráðherra til að ferðast um landið og gera sig gildandi er ærinn þannig að ég mun greiða atkvæði gegn þessu.