151. löggjafarþing — 105. fundur,  2. júní 2021.

þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnaður.

663. mál
[14:00]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Þetta er mjög áhugavert mál. Ég skil t.d. ekki af hverju þingmenn sem ekki eru að fara í framboð eru undanskildir í þessu, en ég er alveg tilbúinn til að samþykkja málið þrátt fyrir það. Mér finnst það bara algjör óþarfi. Þeir þingmenn eiga að geta sótt um endurgreiðslu með reikningum eins og allir hinir. Hvað varðar hins vegar ráðherrana treysti ég því alveg að það mál verði afgreitt á réttan hátt í samræmi við þetta frumvarp, þó með stóru EN: Í síðustu kosningabaráttu eða árið 2016, það var stutt á milli þeirra, var ég á flakki um Snæfellsnesið, á eigin kostnað að sjálfsögðu. Þar hitti ég fyrir ráðherra sem voru þar líka á flakki og voru að fara í framhaldsskóla og svoleiðis, en mættu síðan í ráðherrabílunum á kosningafund í Ólafsvík sama dag. Það er væntanlega ferð sem er rukkuð öll út á ráðuneytið þótt hluti tilgangs þeirrar ferðar hafi einmitt verið að mæta á kosningafund hjá flokknum. Þannig þurfum við líka að snúa þessu við: Ef ferð er nýtt sem kosningaferð þá er það kosningaferð þó að það sé óvart farið í heimsóknir í einhverja skóla á meðan.