151. löggjafarþing — 105. fundur,  2. júní 2021.

þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnaður.

663. mál
[14:01]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Þetta er dapurlegur málflutningur. Hér er verið að reyna að sá tortryggni þvert á staðreyndir málsins. Ég skil ekki hvað hv. þingmanni gengur til. Getum við ekki glaðst yfir þessu þarfa umbótamáli sem er að jafnstilla frambjóðendur framboða sem ekki eru með frambjóðendur, sem ekki eiga sæti á þingi, við hina í kosningabaráttunni? Grundvallarlögin sem ganga frá þessu máli eru hér til afgreiðslu, lögin um þingfararkaup og þingfararkostnað. Það er búið að ganga frá þessu máli þannig að lögum að það er embættisskylda fjármálaráðherra að aðlaga reglur fyrir ráðherrnna hvað þingmannshluta starfa þeirra snertir, því sem Alþingi setur í lög. Til viðbótar höfum við bréf viðkomandi ráðuneyta um að það verði gert, að sjálfsögðu, en við hefðum ekkert þurft að skrifa það bréf. Það liggur þannig að lögum að fjármálaráðherra, sem er ábyrgur fyrir þessum reglum, á að aðlaga þær að og samræma þær því sem Alþingi ákveður. Hér er verið að ákveða hvernig þetta verður í aðdraganda kosninganna í haust og þyrfti engin bréf. Mér finnst miður að menn skuli vera að reyna að búa til úr þessu eitthvert mál sem alls ekki er til. Lögin afgreiða þetta.