151. löggjafarþing — 105. fundur,  2. júní 2021.

þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnaður.

663. mál
[14:03]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Vonandi er það rétt að þetta gagnist öllum jafnt, en því miður er tortryggnin til staðar. Við vorum að samþykkja hér lög nýlega þar sem allir borga í Atvinnuleysistryggingasjóð, en alltaf er einhver skilinn eftir. Tortryggnin er fyrir hendi. Það virðist vera orðin regla að það eigi alltaf að skilja einhverja eftir eða að einhverjir eigi að fá meira en hinir. Þetta er orðið gegnumgangandi hérna. Við sjáum þetta best á því þegar stúdentar og eldri borgarar borga í Atvinnuleysistryggingasjóð en fá þó ekkert til baka. Þess vegna er þessi tortryggni og ótti hérna, að alltaf sé verið að sjá til þess að annaðhvort fái einhver meira eða þá að einhver sé skilinn eftir.