151. löggjafarþing — 105. fundur,  2. júní 2021.

þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnaður.

663. mál
[14:04]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Þau skref sem stigin eru með þessu frumvarpi eru jákvæð þó að þetta séu ekki öll skrefin sem við viljum sjá stigin, þó það nú væri. Við ræddum það hér við 1. umr. að það væri kominn tími til að endurskoða allt regluverkið í kringum þingfararkaup og þingfararkostnað. Það er flókið, það er ógagnsætt og það eru þættir í þessu regluverki sem bjóða alla vega upp á ásýnd sjálftöku, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Það breytir því ekki að þetta skref er gott þótt það sé engan veginn síðasta skrefið og engan veginn það besta sem við gætum tekið. En við skoðum það bara í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hvort hægt sé að útfæra þetta þannig að það nái yfir öll okkur sem sitjum hér í þessum sal, ekki bara þau sem eru löggjafa megin, heldur líka þau sem eru framkvæmdarvalds megin í salnum.