151. löggjafarþing — 105. fundur,  2. júní 2021.

þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnaður.

663. mál
[14:05]
Horfa

Jón Þór Ólafsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Málið er mjög gott. Það þýðir í rauninni að ferðakostnaður í aðdraganda kosninga verður ekki greiddur af Alþingi. Í mörgum tilfellum ferðast þingmenn um til að sinna kosningabaráttu sinni. Horfum bara á jafnræði. Við erum með þingmenn, hluti af þeim eru ráðherrar, restin eru þingmenn hjá okkur og svo er fullt af öðrum frambjóðendum, öðrum flokkum o.s.frv. og aðilar í sömu flokkum en eru ekki á þingi og fá ekki neitt greitt. Það sem þetta frumvarp gerir er að það jafnar stöðuna. Með því að samþykkja frumvarpið eins og það liggur fyrir jöfnum við aðstöðumun í kosningabaráttu. Nú er búið að kalla málið inn til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar og að sjálfsögðu munum við ræða það þar og fá skýrar fram hvernig staðan er með ráðherrana sem, eins og bent hefur verið á, menn telja að sé vel rammað inn. En sumir telja að það sé ekki nógu vel rammað inn þannig að við fáum það þá bara á hreint í nefndinni þannig að við getum afgreitt það sem er verið að gera og það vel með þessu frumvarpi.