þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnaður.
Herra forseti. Mér finnst hálfsérkennilegt við umræðu um þetta mál og atkvæðagreiðslu að þarna hafi hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon orðið einna reiðastur á kjörtímabilinu, vegna þess að mér fannst þetta gefa fullt tilefni til þessarar umræðu sem verið hefur. Við höfum alveg séð ráðherra, meira að segja á þessu kjörtímabili, ferðast um á tiltölulega flóknari og dýrari farartækjum en bara á hestum og bílum. Ég ætla ekkert að fara að vísa í þær fréttir, en það er bara full ástæða til að hnykkja á þessu. Vissulega eru þessar breytingar góðar vegna þess að þær eru til jafnræðis gagnvart þeim þingflokkum sem eiga ekki sæti í einstökum kjördæmum eða nýjum framboðum. Þannig að hér hefur bara komið fram stuðningur við það sjónarmið. En það er ekkert að því þó að þingið árétti, hnykki á í nefndaráliti eða annars staðar, að það sama skuli gilda um ráðherra. Annað er útúrsnúningur.