151. löggjafarþing — 105. fundur,  2. júní 2021.

þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnaður.

663. mál
[14:07]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Það er auðvitað hið besta mál að gæta jafnræðis milli frambjóðenda í aðdraganda kosninga. Það er enginn að deila um það og þarna eru þingmenn teknir alveg sérstaklega út, þeir þingmenn sem ekki eru ráðherrar, en ráðherrar skildir út undan. Að kalla þetta dapurlegan málflutning, það er bara ekki rétt. Það er alger tvískinnungur að leggja þetta svona fram. Auðvitað eiga ráðherrar að vera settir undir sömu sök og þingmenn í þessu. Það er engin leið út úr þessu, að samþykkja þetta mál, nema tekin verði ákvörðun um að leggja hreinlega ráðherrabílunum, leggja þeim í þessar sex vikur. Miðflokkurinn hefur barist gegn þessu máli alveg frá upphafi og benti á þennan tvískinnung. Við munum ekki geta samþykkt þetta mál óbreytt. Ráðherrarnir verða að vera með í þessu.