þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnaður.
Herra forseti. Það er bara mjög ólíkt milli okkar hér í þinginu hversu oft við höfum verið í hlutverki refsins. En þau þekkja það auðvitað sem hafa verið þar. Hér er ekkert um annað að ræða, og umræðan hefur snúist um það alla vega hjá flestum þingmönnum, en að þingið vill að þetta komi fram, hugsanlega í nefndaráliti eða annars staðar, og að hnykkt sé á þessu. Það er svo bara ráðherranna að hnýta þá hnúta. Um annað er ekki að ræða. Það er bara sjálfsagt mál að gera það þannig að við og fjölmiðlar og almenningur getum þá fylgst með því með hvaða hætti þessu verður framfylgt fram að kosningum. En ég fagna þessu frumvarpi vegna þess að hér er jafnræðisskref stigið. (SJS: Gleðjumst nú saman.)