151. löggjafarþing — 105. fundur,  2. júní 2021.

þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnaður.

663. mál
[14:12]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég kem hér upp til þess að taka af öll tvímæli um að auðvitað standa menn við það sem sagt hefur verið, að starfskostnaðarreglurnar verða samræmdar eins og lofað hefur verið. Það er ekki í einhverjum þykjstuskap sem það erindi er sent hér þinginu og tekið fram að menn fylgist með því sem gerist á þinginu. Það er síðan annað mál að hér er þingið að reyna að fara inn á brautir sem getur verið mjög vandasamt að þræða. Ég segi bara sem ráðherra í kosningabaráttu: Hann stendur auðvitað frammi fyrir fólki sem ráðherra í sínum málaflokki. Þó að þingið ætli að setja hann á stall, jafnsettan öllum öðrum frambjóðendum, þá mætir hann til fundar við fólk úti um allt land til að standa reikningsskil gjörða sinna á kjörtímabilinu og gerir það sem ráðherra, (Gripið fram í.) jafnvel þótt þingið vilji taka af honum (Gripið fram í.) þau forréttindi að vera ráðherra. (Gripið fram í.)

(Forseti (WÞÞ): Hæstv. ráðherra hefur orðið.)

Hann mun svara í símann og svara erindum og hann mun gegna embættinu þar til hann hefur skilað lyklum í ráðuneytinu. (Gripið fram í.)