151. löggjafarþing — 105. fundur,  2. júní 2021.

þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnaður.

663. mál
[14:13]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Þessi óvænti óundirbúni fyrirspurnatími er óðum að skýra þetta mál, því að hæstv. fjármálaráðherra er búinn að koma hér upp og útskýra það að ráðherrar eigi áfram að hafa fríðindi til að ferðast um á kostnað ríkisins vegna þess að þeir þurfa að hitta kjósendur og standa reikningsskil sem ráðherrar. (Gripið fram í.) En þurfa ekki þingmenn að hitta kjósendur og standa reikningsskil sem þingmenn? (Gripið fram í.) Í þessu birtist það viðhorf sem verið hefur ríkjandi hjá þessari ríkisstjórn allt þetta kjörtímabil gagnvart Alþingi, ríkisstjórn sem samþykkti stjórnarsáttmála sem var sérstaklega kallaður stjórnarsáttmáli um eflingu Alþingis. (Gripið fram í: Heyr, heyr.) En raunin hefur verið þveröfug og birtist skýrt, bæði með orðum hæstv. forseta og hæstv. fjármálaráðherra sem staðfesta það að gerður verði greinarmunur, að áfram muni ráðherrar ferðast um allt og líklega taka meðframbjóðendur sína úr eigin flokkum með sér á kostnað ríkisins en þingmenn ekki. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)