151. löggjafarþing — 105. fundur,  2. júní 2021.

þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnaður.

663. mál
[14:14]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Mér finnst vera að birtast ákveðin umræða hérna sem ég hef verið að benda á allt þetta kjörtímabil og rúmlega það, þar sem ýmsir á þingi virðast ekki kunna að gera greinarmun á því hvað er hittingur og fundur vegna framboðs, persónulegur hittingur og svoleiðis, og síðan hvað flokkast undir að sinna störfum þingsins eða sem ráðherra. Mér finnst það rosalega auðvelt. Ef það er einhver vafi á því, einhver möguleiki á að ferð sé í rauninni ekki bókstaflega vegna starfanna sem ráðherra eða þingmaður sinnir, þá er það hitt; vafinn á að falla þeim megin, sérstaklega í kringum kosningar.