151. löggjafarþing — 105. fundur,  2. júní 2021.

þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnaður.

663. mál
[14:15]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Þessi umræða eða atkvæðaskýring er farin að hafa svolítið skemmtanagildi. Það rifjaðist upp fyrir mér, þegar við vorum að byrja að tala um hálendisþjóðgarð í vetur, að þá talaði hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon um að það væri aðeins hinn grenjandi minni hluti sem væri á móti hálendisþjóðgarði, sem breyttist síðan í það að stór hluti þjóðarinnar var ekki alveg hlynntur honum. Mér finnst málið vera að taka svolítið þá stefnu núna. Það er algerlega kristaltært í mínum huga að þetta er mjög tvíbent mál, að taka þetta skref svona án þess að það sé skýrt hvert framhaldið verður.