þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnaður.
Herra forseti. Þetta mál kemur hingað inn og byrjaði reyndar sem hið ágætasta mál, að jafna stöðu frambjóðenda fyrir kosningar. Síðan breyttist það; málið á auðvitað ekki að fjalla um alla heldur einungis þá þingmenn sem ekki eru ráðherrar, og endar hér í sölum Alþingis sem hið hlægilegasta mál. Menn virðast vera svo uppfullir af sektarkennd að leggja þetta mál fram með þessum hætti. Sýndarmennskan verður síðan allsráðandi. Miðflokkurinn hefur barist á móti þessari útfærslu á málinu alveg frá byrjun. Við getum ekki samþykkt þetta mál svona óbreytt fyrr en allir eru settir undir sama hatt og í því felst að ráðherrabílunum verði lagt.