151. löggjafarþing — 105. fundur,  2. júní 2021.

þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnaður.

663. mál
[14:18]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Ég get tekið undir það að borgarlínan kunni að leysa þetta mál. En ég kom upp til að þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir að taka af öll tvímæli um að þær áhyggjur sem ég og fleiri höfum haft alveg frá byrjun í þessu máli eru réttmætar. Þess vegna ítreka ég að á meðan er ekki gengið frá þessu máli alveg naglfast þá ekki er hægt að samþykkja það. Ég verð að rifja upp í þessu samhengi að þó að ráðherra og ráðuneyti lofi einhverju er ekki endilega víst að það takist. Ég vísa til nýlegs máls sem vísað var til fjármálaráðuneytisins við þinglok í fyrra gegn loforði um að það kæmi frá ríkisstjórn fyrir jól en hefur ekki komið fram enn og mun ekki koma samkvæmt því svari sem kom fram hjá hæstv. fjármálaráðherra um daginn. Þannig að fjármálaráðherra gerði vel núna að staðfesta grunsemdir okkar um þetta mál.