þingsköp Alþingis og réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Forseti. Sem framsögumaður málsins vil ég bara þakka nefndinni kærlega fyrir góð störf. Okkur tókst virkilega vel að sætta þau sjónarmið sem voru til staðar. Málið er gott. Ég þakka Steingrími J. Sigfússyni sem lagði það fram fyrir þingskapanefnd og ég þakka þingskapanefndinni fyrir störf hennar í málinu. Þetta þýðir aukið gegnsæi og eftirlit, skilvirkni starfs þingsins er aukin án þess að ganga á réttindi þingmanna. Þetta er mjög gott framfaraskref og ég þakka öllum sem tóku þátt í vinnunni við málið.