þingsköp Alþingis og réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Hæstv. forseti. Ég hef stutt þetta mál. Ég gerði reyndar þann fyrirvara í nefndaráliti að ég hef haft og hef enn áhyggjur af því hversu seint ráðherrar svara fyrirspurnum. Sumir þeirra hafa reyndar gengið í berhögg við lög um ráðherraábyrgð og þingsköp í viðleitni sinni að halda upplýsingum frá þinginu og hefur tekið allt upp í tvö og hálft ár að særa svör út úr sumum þeirra.
Að öðru leyti fagna ég því að þetta mál verður tekið til frekari umræðu og verður örugglega til þess að reyna að bæta úr hér. Ég hefði viljað setja einhvers konar viðurlög eða eitthvað slíkt, en því miður er það ekki hægt, ekki nema Landsdómur, sem ég mæli ekki með. Það þarf samt einhverja svipu á ráðherra og ráðuneyti til að þau svari fyrirspurnum. Mig langar til að beina orðum mínum til hæstv. fjármálaráðherra um fyrirspurn sem verður fjögurra mánaða eftir tvo daga sem er enn ósvarað þótt 15 dagar séu áskildir.