almenn hegningarlög.
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar vegna þessa frumvarps sem felur í sér breytingu á almennum hegningarlögum. Í nefndaráliti er rakið hvaða gestir komu fyrir nefndina og hvaða umsagnir bárust. Kjarni málsins er sá að verið er að breyta 1. mgr. 227. gr. almennra hegningarlaga, sem varðar refsinæmi mansals, í þeim tilgangi að bæta enn frekar vernd þolenda mansals og auðvelda um leið málsókn á hendur þeim sem gerst hafa brotlegir.
Í stuttu máli má segja að gestir nefndarinnar voru jákvæðir gagnvart frumvarpinu eins og það liggur fyrir og var samhljómur um að auka réttarvernd þeirra sem verða fyrir mansali. Eins kom fram að þessi lagabreyting gæti verið mikilvægur liður í því að efla viðbrögð af hálfu réttarvörslukerfisins gagnvart afbrotum af þessu tagi.
Í nefndarálitinu er umfjöllun sem vísar m.a. til aðgerðaáætlunar stjórnvalda frá árinu 2019 og er tekið fram að stjórnvöld hafi með þeirri stefnumörkun komið með heildstæða stefnu á þessu sviði. Sumt er tímasett í þeirri áætlun og annað ekki. Þetta frumvarp er mikilvægur liður í því að vinna gegn þessum vanda en er auðvitað ekki eina aðgerðin sem skiptir máli í því sambandi.
Í nefndarálitinu er fjallað nokkuð um stöðu þolenda mansals og réttarstöðu þeirra sem eru í raun fórnarlömbin í þessu. Meiri hlutinn kemst að þeirri niðurstöðu að ekki sé þörf á að bæta við, eins og komið hafði fram í umræðu, þeim fyrirvara 1. gr. frumvarpsins að samþykki brotaþola hafi ekki áhrif á refsiábyrgð, enda er þarna um að ræða alvarleg brot og þolandinn í mjög viðkvæmri stöðu, þannig að það er ekki talin breyting að þessu leyti.
Varðandi hugtakanotkun og orðanotkun í frumvarpinu er nokkur umfjöllun um vinnumansal o.fl. Gerð er sú breyting að verið er að rýmka ákvæði til að það nái yfir ýmsar tegundir vinnumansals með skýrari hætti en nú er. Hins vegar taldi meiri hlutinn ekki tilefni til að víkka meira en gert er með þessu frumvarpi verknaðarlýsingar og orðalag ákvæðisins hvað það varðar, meira en gert er í frumvarpinu, og vísar m.a. til þess að refsiheimildir, eins og hér er um að ræða, þurfi að vera skýrar og ástæða til að taka það fram að með óskýrum refsiheimildum sé hugsanlega verið að draga úr gildi þeirra ákvæða sem um er að ræða. Ef gengið er of langt í að rýmka þetta eða víkka það út getur heimildin orðið of óskýr og þar með verður erfiðara að beita henni, þannig að breytingar í þá átt geta hugsanlega unnið gegn markmiði sínu. Nefndin telur alla vega að þetta sé í góðum farvegi eins og frumvarpið liggur fyrir og fjallar líka um aðra hugtakanotkun í þessu sambandi en telur ekki tilefni til breytinga á frumvarpinu að því leyti.
Undir nefndarálit í þessu máli rita auk þess sem hér stendur Páll Magnússon, Guðmundur Andri Thorsson, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Steinunn Þóra Árnadóttir og Þorsteinn Sæmundsson.