almenn hegningarlög.
Herra forseti. Ég tek undir mjög mörg af þeim sjónarmiðum sem koma fram í ræðu hv. þm. Gunnars Braga Sveinssonar. Það hefur auðvitað verið rætt undir öðrum liðum og í tengslum við önnur mál sem fjallað hefur verið um á vettvangi allsherjar- og menntamálanefndar og hefur líka verið tekið fyrir oftar en einu sinni hér í þingsal. Þar hefur m.a. verið rakið hvernig auknum fjármunum hefur verið varið sérstaklega til baráttunnar gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Sú barátta er mikilvæg og þarf að halda áfram. Það þarf að sinna henni með margvíslegum hætti. Partur af því máli, af þeim aðgerðum sem við erum að grípa til til að vinna gegn skipulagðri glæpastarfsemi, felst í þessu frumvarpi þannig að þessi afmarkaði þáttur geti fengið greiðari meðferð og betri málsmeðferð í réttarvörslukerfinu í þeim tilgangi að hægt verði að koma lögum yfir þá sem brjóta af sér á þessu sviði.