151. löggjafarþing — 105. fundur,  2. júní 2021.

almenn hegningarlög.

550. mál
[15:45]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ég kom upp í andsvar við framsögumann og hafði smááhyggjur af kostnaðinum. Í frumvarpinu, í 6. kafla, er fjallað um mat á áhrifum. Þar segir, með leyfi forseta:

„Gera verður ráð fyrir því að fleiri mansalsmál fari í rannsókn hjá lögreglu og hljóti framgang innan réttarvörslukerfisins sem mun hafa í för með sér aukinn kostnað lögreglu og ákæruvalds en gert er ráð fyrir að sá kostnaður rúmist innan ramma málaflokkanna.“

Ég sé þetta rosalega oft, „rúmist innan ramma málaflokkanna“, og ég klóra mér í hausnum. Þegar ég spyr í fjárlaganefnd hvað lögbundin verkefni hins opinbera kosti þá fæ ég svörin: Við höfum ekki hugmynd, það er ekki flokkað, við erum ekki með neina samantekt um þetta.

Fyrir nokkrum fjárlögum síðan, 2020 minnir mig, voru Píratar með tillögu um viðbætur til Vinnumálastofnunar, til lögreglunnar, til þessara aðila, innan réttarvörslukerfisins, hjá lögreglu, til þess að geta haft svigrúm til að bregðast við fjölgun á málum. Því var hafnað og sömu tillögum var aftur hafnað í fjármálaáætlun núna fyrir helgi. Þrátt fyrir það hefur ekki verið hægt að útskýra hvernig aukin verkefni rúmist innan ramma málaflokkanna. Annaðhvort er þá verið að hagræða eitthvað annað í burtu, ekki verið að vinna einhver önnur störf á meðan sem eru þá greinilega óþörf, eða rammi málaflokkanna er einfaldlega það stór að til er fjármagn nú þegar.

Nú eru að koma t.d. fréttir frá lögreglunni sem var að ná samkomulagi við dómsmálaráðuneytið um 900 milljónir vegna styttingar vinnuvikunnar. Það er mun meira fjármagn en rúmast greinilega innan ramma málaflokkanna. Einhvers staðar á þessu bili liggur þessi kostnaður, hvað svigrúm málaflokkanna er mikið til að glíma við aukin verkefni. Hversu mörgum auknum verkefnum er gert ráð fyrir út af þessu? Ég sé ekkert mat á því í frumvarpinu eða nefndarálitinu. Maður hefði haldið að Alþingi myndi spyrja sig að þessu, t.d. hv. allsherjar- og menntamálanefnd, um umfang vandans, hversu stór vandinn sem við erum að glíma við sé, og síðan, eins og á að gera samkvæmt lögum um opinber fjármál, að þingið myndi kostnaðarmeta lausnirnar.

Nú er þessi lausn bara mjög góð, mjög nauðsynlegt að gera þessar breytingar og ég tek alveg heils hugar undir það. En á sama tíma vil ég ekki fá reikninginn í hausinn seinna meir og segja: Já, þetta kostaði 200 milljónir aukalega, best að fjármagna það eftir á. Það var ekki einu sinni reynt að gera kostnaðarmat eða umfangsmat á þessu verkefni sem mér finnst vera óábyrgt. Það er það, sérstaklega í þessum aðstæðum núna þar sem við erum að klóra í hverja krónu til að ná utan um faraldurinn og það ástand sem er þar í gangi.

Það er hægt að vera afslappaður gagnvart þessu og segja að það komi bara í ljós seinna hvað þetta muni kosta. En það er einmitt viðhorfið sem hefur skilað okkur á þann stað að þetta rúmist innan ramma málaflokksins, þetta reddist bara seinna, það íslenska viðhorf að þetta reddist, hér er aldrei viðhorfið að skipuleggja kannski aðeins til framtíðar og hafa smá forsjálni. Þegar við fáum mat á umfangi þá getur það slegið okkur á þann hátt að við spyrjum okkur hvernig þetta geti kostað svona mikið, eða að við teljum þetta frábæra lausn sem kostar ekki neitt. Þessi lausn er greinilega frábær og kostar sama og ekki neitt og rúmast innan málaflokksins en við höfum ekki hugmynd um hvort það er rétt eða ekki. Þegar við fáum kostnaðargreiningu um að verkefni sé dálítið dýrt, kosti 200 milljónir, er það eðlilegt verð fyrir þessa lausn eða er hægt að gera þetta á einhvern hagkvæmari hátt? Þarf að taka tillit til einhverra annarra laga eða reglna í þessum málaflokki til að gera það skilvirkara? Við vitum það ekki af því að það er ekki gerð greining á því, eins og alltaf.

Við verðum að losna úr þessari hefð. Þetta kjörorð okkar Íslendinga, þetta reddast, eins æðislegt og það er á köflum, á ekki við þegar við erum að reyna að hafa einhvers konar stjórn á almannafé. Það má ekki bara vera „þetta reddast“ því að þá glímum við við þann vanda að þegar við spyrjum hvað kosti að reka Blóðbankann er svarið: Ég veit það ekki. Það er stórkostlega skrýtið. Auðvitað viljum við reka blóðbanka og það er nauðsynleg þjónusta sem kostar örugglega þokkalega lítið miðað við mikilvægi. En það er mjög skrýtið að við vitum það ekki. Þetta á við öll verkefni hins opinbera sem við ákveðum hérna samkvæmt lögum. Við fáum lagafrumvörp inn á þing sem gefa fólki ákveðin réttindi, skilgreina ákveðna þjónustu sem við sem samfélag erum tilbúin til að tryggja. Á móti því leggjum við á skatta, ekki til þess að fjármagna þjónustuna, þ.e. til efnahagsstjórnar sem slíkrar, en það hefur áhrif á efnahagsstjórnina að setja lög þjónustu og réttindi sem fólk hefur aðgang að. Það þarf að sinna því á gagnsæjan hátt að koma með það til Alþingis og sýna það sem gert er ráð fyrir að þessi réttindi og þjónusta kosti. Það þarf að gera það.

Það er ástæða fyrir því að við settum það í lög: Til þess að framkvæmdarvaldið, sem er aðskilið frá löggjafarvaldinu og fjárveitingavaldinu, skili því til okkar. Ef við fáum það ekki þá erum við að afsala okkur fjárveitingavaldinu til framkvæmdarvaldsins. Mér líður dálítið eins og við séum í þeirri stöðu. Það eru geðþóttaákvarðanir hvort leitað sé eftir heimildum þingsins fyrir fjármögnun. Til dæmis átti fjáraukalagafrumvarpið ekki að koma hingað til að byrja með, það voru fyrstu fregnir af því, það átti að færa á milli o.s.frv., redda þessu. Það er einmitt afsal á fjárveitingavaldinu til framkvæmdarvaldsins sem þarf að útskýra af hverju notkun þess á almannafé sé góð notkun á almannafé. Í þessu máli er það tvímælalaust góð notkun á almannafé að tryggja þessi réttindi. En það er grundvallarspurning að við fáum að vita hvert umfangið er af því að umfangið getur búið til betri lausnir. Kannski er engin betri lausn til í þessu máli, ég er að tala á almennu nótunum hvað þetta varðar. Án greiningar á því hvert umfangið er getum við aldrei sagt: Heyrðu, bíddu aðeins, er kannski hægt að gera þetta á einhvern betri hátt? Þetta er gegnumgangandi í gegnum alla vinnu sem ég hef unnið hérna, ég hef verið í fjárlaganefnd, þetta er það sem vefst fyrir bæði þinginu og þá líka þjóðinni því að skilin á þessum áætlunum verða gagnsæ gagnvart þjóðinni þegar þau eru lögð fram á þingi. Þá sést svart á hvítu af hverju fólk er í rauninni að greiða skatta til að stilla af efnahaginn. Það er algjört lykilatriði að við látum ekki framkvæmdarvaldið komast upp með að segja að eitthvað rúmist innan ramma málaflokksins án þess að útskýra af hverju. Ég gagnrýni þann hluta nefndarálitsins, nefndarvinnunnar, að það hafi ekki verið passað upp á það og væri til í að nefndin fengi kannski smá minnisblað um þetta, kannski á milli 2. og 3. umr.