151. löggjafarþing — 105. fundur,  2. júní 2021.

almenn hegningarlög.

550. mál
[15:56]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Herra forseti. Við ræðum hér mikilvægt mál. Ég fagna að sjálfsögðu þeim breytingum sem lagðar eru til í þessu frumvarpi sem eiga að styrkja 1. mgr. 227. gr. almennra hegningarlaga. Þessi breyting er meira í samræmi við alþjóðasamninga sem hafa það markmið að berjast gegn skipulagðri brotastarfsemi, sérstaklega mansali eins og við erum að fjalla um hér, og löngu tímabært að setja ákvæði sem þetta í hegningarlög.

Ég verð að segja að mér finnst ríkisstjórnin ekki hafa staðið sig vel í því að bregðast við því sem var vitað. Árið 2019 var gerð skýrsla, eins og vitnað hefur verið í, þar sem fjallað var sérstaklega um þetta og um skipulagða glæpastarfsemi. Skýrslan var gerð af greiningardeild ríkislögreglustjóra, eins og komið hefur fram í þessari umræðu. Það var í maí 2019 og nú erum við stödd hér tveimur árum síðar þar sem á að fara að reyna að bregðast við þessu með lagasetningu. Mér finnst það bara allt of langur tími. Mér finnst að ríkisstjórnin hafi ekki staðið sig nægilega vel í því að bregðast við þeirri skelfilegu háttsemi, ef ég má orða það þannig, sem felst í mansali.

Það er fróðlegt að skoða skýrslu ríkislögreglustjóra frá 2010 um mansal, með upplýsingum og leiðbeiningum um verklag fyrir lögreglu. Þar eru tekin dæmi um starfsemi þar sem mansal kann að vera á ferð sem segir okkur að við þurfum að vera mjög vakandi yfir því sem borgarar í þessu landi hvar mansal getur leynst. Það getur leynst mjög víða og hefur aukist á undanförnum árum. Ein af ástæðunum er jú að hingað kemur orðið mun fleira af umsækjendum um alþjóðlega vernd en var. Einnig hefur komið fram af hálfu ríkislögreglustjóra, í rannsóknarvinnu hans, að verið er að misnota hælisleitendakerfið eða kerfið sem við höfum um alþjóðlega vernd þegar kemur að mansali.

Það er fróðlegt að skoða dæmi um starfsemi þar sem mansal kann að vera á ferð, eins og segir í skýrslu ríkislögreglustjóra frá 2010. Þar segir að þolendur mansals geti verið að finna um land allt, því fari fjarri að slík starfsemi sé bundin við höfuðborgarsvæðið eða þéttbýli almennt. Ég verð að segja það fyrir sjálfan mig að ég hélt reyndar að þetta væri einangrað við þéttbýlið og höfuðborgarsvæðið. Það er það greinilega ekki, sem segir okkur að við þurfum svo sannarlega að vera vakandi yfir þessu. Svo segir áfram í skýrslunni:

„Viðkomandi þolendur geta sætt þvingun og ánauð af margvíslegum toga.“

Svo er hér listi um starfsemi þar sem kann að vera að þolendur mansals séu að störfum. Jafnframt segir í skýrslunni að listinn sé engan veginn tæmandi. Hér er talað um götuvændi, vændi í klúbbum og nuddstofum og hótelum o.s.frv. og við framleiðslu kláms og framleiðslu barnakláms. Síðan er talað um skipulögð hjónabönd, þvinguð hjónabönd, þjónustustörf á heimilum, barnapössun, fjölskyldufyrirtæki, störf á veitingastöðum, hreingerningarfyrirtæki, bifreiðaverkstæði, steypuvinnu, hellulagnir og byggingariðnað, landbúnaðarstörf, betl, götusölu, þjófnað og önnur auðgunarbrot, framleiðslu, flutning og dreifingu fíkniefna og líffæragjöf. Allt er þetta starfsemi þar sem mansal kann að vera á ferð. Það er ótrúlega vítt svið og segir okkur að þetta er mun útbreiddara en ég held að flestir geri sér grein fyrir. Þess vegna er ákaflega mikilvægt að við tökum þetta alvarlega.

Hér er verið að bæta lagaumgjörðina. Í umsögn Amnesty International um frumvarpið segir, með leyfi forseta:

„Þá tekur deildin undir orð Mannréttindaskrifstofu um að þess sé gætt með skýrum hætti, í samræmi við 3. gr. b. Palermó-bókunarinnar og 4. gr. b. Evrópuráðssamningsins um aðgerðir gegn mansali, að samþykki fórnarlambs mansals hafi engin áhrif á refsiábyrgð ef þeim aðferðum er beitt sem taldar eru upp í a-lið beggja ákvæða.“

Þetta er mikilvægt að hafa í huga vegna þess að þeir sem verða fyrir þessu og eru fórnarlömb mansals eiga oft og tíðum mjög erfitt með að tjá sig um það og viðurkenna hvað sé í gangi og þora það hreinlega ekki vegna þess að þeim er hreinlega hótað barsmíðum og lífláti ef þeir viðurkenna að þeir séu fórnarlömb mansals.

Síðan er ágætisumsögn frá Rauða krossinum. Rauði krossinn fagnar þessu frumvarpi og telur að breytingarnar séu til þess fallnar að auka réttarvernd þeirra sem verða fyrir mansali, einkum og sér í lagi þeirra hópa sem nefndir eru í frumvarpinu, þar á meðal eru umsækjendur um alþjóðlega vernd. Ég ætla aðeins að staldra við það vegna þess að það er nú einu sinni þannig, og hefur komið fram í þessari umræðu, og við í Miðflokknum höfum bent á það og það hefur verið staðfest af hálfu dómsmálaráðuneytisins, að sú lagaumgjörð sem hér er um umsækjendur um alþjóðlega vernd er veikari en í löndunum í kringum okkur, í Skandinavíu og annars staðar í Evrópu. Hér er veitt mjög góð þjónusta þegar kemur að móttöku þeirra sem sækja um alþjóðlega vernd. Auðvitað spilar þetta allt saman þannig að þeir sem eru gerendur í þessum málum nýta sér kerfið, að sjálfsögðu. Þetta er örugglega ein auðveldasta leiðin sem hægt er að hafa til að reyna að koma fólki inn í landið sem er þá fórnarlömb mansals og kemur hér á öðrum forsendum. Og síðan nýta gerendurnir þá veiku aðstöðu sem fólkið er í.

Hér þurfum við svo sannarlega að vera á varðbergi. Við höfum talað mikið fyrir því í Miðflokknum að tekið verði á þessum málum, að lagaumgjörðin hér verði samræmd því sem er t.d. annars staðar á Norðurlöndum. Það er fullkomlega eðlilegt að gera það. Það hefur reyndar fengið misjafnlega góð viðbrögð, m.a. hér í þingsal, og við í Miðflokknum höfum verið sakaðir um að fara einhverja harðlínuleið í þessum efnum. Það er ekki þannig. Þetta snýst um að kerfið sé ekki misnotað og við eigum að sjálfsögðu að skoða það eins og með önnur kerfi okkar.

Það á ekkert að vera að því að tala um að kerfin séu misnotuð, hvort sem það er almannatryggingakerfið eða hælisleitendakerfið o.s.frv. En þegar menn fara að tala um hælisleitendakerfið í þessu samhengi fara m.a. þingmenn og samfélagsmiðlarnir margir hverjir í ægilega vörn yfir því, að þar megi alls ekki breyta neinu og það eigi frekar að opna þetta enn frekar. Það er bara sjálfsagt og eðlilegt og að sjálfsögðu eiga þingmenn líka að taka þátt í umræðu um hvað megi bæta í kerfi sem þessu, einnig þegar kemur að fjárveitingunni. Hvernig nýtum við peningana best í þessum efnum? Ég hef talað fyrir því að við eigum að setja aukna fjármuni í þær stofnanir sem hjálpa fólki á sínum heimaslóðum, stofnanir Sameinuðu þjóðanna, vegna þess að við nýtum fjármunina mun betur þar en hér heima. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna fyrir Palestínumenn, UNWRA, hefur t.d. gefið út að hægt sé að hjálpa u.þ.b. 12–15 einstaklingum á hennar vegum fyrir hvern einn einstakling sem hjálpað er á Vesturlöndum. Við sjáum að það er mun betri nýting á fjármunum, ef það má orða það þannig, að hjálpa fólki á sínum heimaslóðum. Þeir sem koma frá stríðshrjáðum löndum vilja flestir snúa heim þegar þeim átökum linnir og vilja þá vera tiltölulega nálægt sinni heimabyggð.

Ég hef reynslu af þessu sjálfur eftir að hafa starfað á þessum vettvangi og þekki það ágætlega. Við þurfum að skoða þetta allt í þessu samhengi, að loka fyrir þær leiðir sem geta og eru greinilega að opnast meira hér en við höfum áður séð þegar kemur að mansali, þ.e. hvernig fólk kemur inn í landið. Það er ákaflega mikilvægt að fara yfir þau mál og fullkomlega eðlilegt að við höfum sama regluverk og önnur Norðurlönd í þessum efnum. Þau þekkja þennan málaflokk mun betur en við og hafa miklu meiri reynslu af honum, eins og t.d. Svíþjóð og Danmörk. Þessi lönd eru að herða sínar reglur vegna þess að kerfið þar hefur verið misnotað.

Svo í lokin segir hér í umsögn Rauða krossins, svo ég haldi mig áfram við hana, að þau telji að hér sé stigið skref í rétta átt til að efla réttarvernd þeirra sem verða fyrir mansali og draga gerendur til ábyrgðar fyrir brot sín. Ég tek undir að þetta er skref í rétta átt. Ég hefði svo sannarlega viljað sjá að þetta skref hefði verið stigið mun fyrr. Það skrifast á ríkisstjórnina að hafa ekki brugðist betur við þessu sem hefur verið vitað lengi og komið fram í skýrslum af hálfu ríkislögreglustjóra.

Herra forseti. Ég ætla aðeins að víkja að öðru í tengslum við mansal. Við erum þjóð sem vill láta gott af sér leiða á alþjóðavettvangi og styðjum við önnur lönd í þróunarsamvinnu. Þar eru samstarfslönd okkar einkum og sér í lagi Malaví og Úganda. Síðan erum við auk þess með samstarfslönd þegar kemur að orkunýtingu og fiskveiðum, eins og Líberíu og Síerra Leóne. Við erum að auka framlög okkar til þróunarsamvinnu og það er vel. Mig minnir að u.þ.b. 5 milljarðar á þessum fjárlögum fari í þróunarsamvinnu. Þar af fara t.d. á þessu ári u.þ.b. 700 milljónir beint til Malaví í þróunarsamvinnu, að mig minnir. Þessi lönd eiga öll sameiginlegt að þar ríkir ákveðið mansal. Þar eru barnahjónabönd algeng sem og limlestingar á kynfærum kvenna. Það er eitthvað sem við eigum sem samstarfsþjóð þessara landa að taka upp á vettvangi við stjórnmálamenn og ráðamenn í þessum löndum og spyrja hvað verið sé að gera til að uppræta þetta, sem er með þeim hætti að það er erfitt að lýsa því. Það er svo hörmulegt að horfa upp á þetta og ég get sagt það hér að í mínum fyrri störfum horfði ég einu sinni í augun á 13 ára stúlkubarni sem var gift karlmanni sem var um sjötugt. Það tók alveg gríðarlega á mig að sjá það.

Við verðum að beita okkur sem þjóð gegn þeim óskapnaði sem barnahjónabönd eru og limlestingar á kynfærum kvenna. Í Malaví eru t.d. um 46% stúlkna giftar fyrir 18 ára aldur og 10% fyrir 15 ára aldur. Sama máli gegnir um Úganda. Þar eru u.þ.b. 10% stúlkna sem giftast fyrir 15 ára aldur og 40% fyrir 18 ára aldur. Ég las einmitt frásögn tíu ára stúlku sem giftist 50 ára karlmanni. Hún flúði það hjónaband og hefur síðan barist gegn barnahjónaböndum og er orðin þekkt á þeim vettvangi í Úganda. Líbería hefur einna hæsta hlutfallið þegar kemur að limlestingum á kynfærum kvenna. Um 50% allra stúlkna í Líberíu hafa orðið fyrir limlestingu á sínum kynfærum. Þetta er bara mjög ríkt í menningu Líberíu og tölurnar eru aðeins lægri í Síerra Leóne.

Þetta eru allt samstarfslönd okkar í þróunarsamvinnu og við eigum að beita þau þrýstingi um að þar verði tekið á þessum málum. Þegar fjárveitingar eru annars vegar þá fara hlutirnir kannski að hreyfast eitthvað. Persónulega myndi ég skilyrða fjárveitingar til þessara landa, nú tala ég bara fyrir sjálfan mig, þannig að menn sjái árangur, að þessi stjórnvöld sýni fram á árangur í því að berjast gegn barnahjónaböndum og limlestingum kvenna. Við höfum alla burði til þess að taka þetta upp á vettvangi þessara landa. Við eigum að funda, fulltrúar okkar í þróunarsamvinnu; utanríkisráðherra og ráðuneytið eiga að funda reglulega með ráðamönnum þessara landa og spyrja þá hvað þeir séu að gera í því að uppræta mansal í sínum löndum, og varðandi barnahjónabönd og ofbeldið og allt það sem þrífst gagnvart stúlkum þegar kemur að limlestingum á kynfærum. Í Malaví hefur viðgengist ákveðin athöfn eða ritúal sem útleggst á íslensku sem kynferðisleg hreinsun. Þetta er ritúal sem viðgengst í Malaví og gengur út á það að stúlkubörnum er nauðgað af eldri karlmönnum.

Þetta er svo ömurlegt, herra forseti, að það er varla hægt að tala um það. Við getum hins vegar látið gott af okkur leiða í þessum efnum og eigum að gera það, eins og ég rakti hér. Við setjum töluverða fjármuni í þennan málaflokk og til þessara landa og höfum gert margt gott og við erum með gott starfsfólk þarna sem hefur staðið sig frábærlega. Auðvitað er menntun mikill grundvallarþáttur í þessu öllu saman, að mennta þá sem eiga börn og þá sem koma að ákvarðanatöku þegar kemur að stjórnsýslu og öðru slíku. Í Malaví voru barnahjónabönd bönnuð 2015 en það var bara málamyndagerningur vegna þess að þetta er mjög erfitt í framkvæmd því að stjórnvöld fylgja því ekki eftir. Þá er það okkar hlutverk að mínu mati að fylgja þessu eftir. Við komum með fjármuni inn í þessi lönd. Við erum að hjálpa stjórnvöldum þarna og fólkinu að sjálfsögðu og viljum fá að vita hvernig þeim gengur að uppræta þetta sem er mikil skömm á þessum samfélögum.

Herra forseti. Mér þótti rétt að koma inn á þetta mál hér vegna þess að þetta lýtur að mansali og lýtur að því hvað við getum gert til að uppræta það. Ég fagna þessari lagabreytingu. En það þarf hins vegar líka að taka til í öðrum málaflokkum sem tengjast þessu, eins og t.d. þegar kemur að kerfinu okkar um alþjóðlega vernd. Ég segi að lokum að ég vonast svo sannarlega til þess að við tökum okkur á þegar kemur að því að koma þessu á framfæri á erlendum vettvangi.