151. löggjafarþing — 105. fundur,  2. júní 2021.

almenn hegningarlög.

550. mál
[16:16]
Horfa

Guðmundur Andri Thorsson (Sf):

Herra forseti. Ég kem hér einkum upp vegna þess að ég á sæti í hv. allsherjar- og menntamálanefnd og skrifa undir nefndarálit og ég styð þetta frumvarp heils hugar. Þetta er gott mál, hér er verið að bæta vernd þolenda mansals og verið er að auðvelda þeim málssókn. Það er geysilega mikilvægt. Þetta er í samræmi við alþjóðlega samninga gegn skipulagðri brotastarfsemi og mansali, eins og samning Sameinuðu þjóðanna gegn fjölþjóðlegri skipulagðri glæpastarfsemi sem er kenndur við Palermó og viðbótarbókun hans, Palermó-bókunina, um að uppræta mansal, ekki síst kvenna og barna.

Mannkynið er á fleygiferð og hefur verið síðan á síðustu öld og sér ekki fyrir endann á því nema síður sé. Kannski er það rétt að byrja og fólk missir heimili sín og fólk fer á vergang og fólk hrekst á milli landa og fólk reynir eðlilega að leita þangað sem skjól er að finna. Fólk er að flýja stríð. Það er að flýja vonda stjórnarhætti, það er að flýja náttúruhamfarir, það er að flýja efnahagshamfarir, það er að flýja harðstjórn, það er að flýja fátækt og neyð og það er að flýja loftslagshamfarir. En nú stefnir í það, herra forseti, eins og við vitum, með áframhaldandi sinnuleysi um loftslagsógnina, að stór svæði heimsins verði með öllu óbyggileg, sem táknar þá aftur að mikill fjöldi fólks flosnar upp frá heimilum sínum, fer á vergang og verður flóttamenn, verður flóttamannavandi og þar með útsett fyrir glæpastarfsemi af því tagi sem við erum að ræða.

Viðbrögð okkar felast m.a. í lögum af því tagi sem við erum að setja hér. Viðbrögð okkar geta ekki snúist um að loka og læsa og neita og afneita. Við getum ekki farið að dæmi strútsins og stungið höfðinu í sandinn. Við verðum að horfast í augu við þennan vanda, við þurfum að taka á honum og við þurfum að búa til það lagaumhverfi hér á landi að fólk á flótta, fólk í viðkvæmri stöðu, geti haft skjól í lögunum, vegna þess að þessi lög snúast í rauninni ekki um ástand mála úti í heimi heldur um okkar samfélag, hvernig samfélag við viljum hafa hér, hvernig fólk við viljum vera.

Mannlífið á sér ýmsar hliðar eins og við vitum. Sú hlið sem tekið er á í þessum lögum er ein ljótasta hlið mannlífsins sem til er, að það séu til einstaklingar sem hafa geð í sér til þess og réttlæta það jafnvel fyrir sjálfum sér að hagnýta sér neyð annarra. Þeir geta hagnýtt sér neyð annarra með ýmsum hætti; með því að greiða lág laun eða með því að gera fólk að þrælum. Það háttalag sem tekið er á í þessum lögum er í rauninni engu betra en þrælahald og er nútímabirtingarmynd á þrælahaldi.

Þetta mál er heilbrigðismál. Það snýst um heilbrigt mannlíf sem getur aldrei þrifist meðan þrælahald er liðið í samfélaginu. Heilbrigt mannlíf snýst líka um það að einstaklingar gera samninga sín á milli um kaup og kjör, um eðlilega greiðslu fyrir vinnu sem innt er af hendi og að þeir samningar fari fram á jafningjagrundvelli. Mansal er andstaða alls þess. Þetta snýst um kynlífsánauð og það er erfitt að hugsa sér meiri andstæðu við heilbrigð samskipti en kynlífsánauð er. En þetta snýst líka um heilbrigt atvinnulíf. Þetta snýst líka um heilbrigt samkeppnisumhverfi fyrirtækja, að fyrirtæki geti keppt sín á milli á eðlilegum og heilbrigðum grundvelli en komist ekki upp með að stunda undirboð til ýmissa verkefna með því til að mynda að greiða verkafólki og þeim sem vinnuna inna af hendi óeðlilega lág laun, lægri laun en samningar kveða á um.

Það hefði verið æskilegt að lögum af þessu tagi, sem eru í rauninni nokkurs konar hreinsunarstarf í íslensku lagaumhverfi og íslensku atvinnuumhverfi, hefðu fylgt lög sem samið var um í svokölluðum lífskjarasamningum á sínum tíma og bæði verkalýðshreyfingin og samtök atvinnurekenda höfðu væntingar um að myndu ná fram að ganga hér á þingi en strönduðu því miður í meðförum þingsins og snerist um kennitöluflakk, því að þetta finnst mér vera náskylt því. Fyrirtæki sem stunda þann ljóta leik að greiða verkafólki sínu of lág laun, laun undir töxtum og hafa jafnvel orðið uppvís að starfsemi sem líkist a.m.k. vinnumansali, hafa líka orðið uppvís að því að stunda það sem kennt hefur verið við kennitöluflakk og slík brotastarfsemi á atvinnumarkaði, sem er auðvitað óþolandi fyrir alla þá aðila sem eru að reyna að stunda eðlilega og heilbrigða viðskiptahætti. Þetta er, má segja, hliðargrein, hliðarmál, hliðstætt mál því sem við fjöllum um hér.

En ég kem þó fyrst og fremst hér upp til að fagna þessu máli og lýsa yfir eindregnum stuðningi við það. Ég minni á að síðasta góðæri var ekki síst borið uppi af innfluttu, ódýru vinnuafli. Þar með er ég ekki að saka þau fyrirtæki sem gerðu það gott í góðærinu um að hafa stundað ólögmæta viðskiptahætti, alls ekki og öðru nær, það skilji enginn orð mín svo. En ég minni bara á að við þurfum á því að halda að hér sé heilbrigt atvinnuumhverfi og við þurfum á því að halda að fólk geti komið hingað og stundað hér vinnu og geti gengið að vísum bæði góðum kjörum og góðu húsnæði og að aðrar lágmarksþarfir séu tryggðar á sómasamlegan hátt. Þetta er lágmarkskrafa sem eitt samfélag hlýtur að gera til sjálfs sín.

Önnur forsenda sem mér finnst að þurfi að vera fyrir þessum lögum varðar fjármögnun lögreglunnar. Eins og aðrir ræðumenn á undan mér hafa vikið að er það áhyggjuefni hversu vanfjármögnuð lögreglan er og illa í stakk búin til að sinna sínum lögbundnu verkefnum og skyldum. Þar á meðal er þess að vænta að auknum skyldum og verkefnum á þessu sviði, hvað varðar mansal, fylgi aukin fjárþörf.

Ég ætla ekki að hafa þetta öllu lengra að þessu sinni en ég ítreka stuðning minn við þetta frumvarp.