almenn hegningarlög.
Virðulegi forseti. Ég er sammála hv. þingmanni um ýmislegt sem kom fram í ræðu hans, m.a. að efla þurfi lögregluna. Það er eitthvað sem ég veit að ég og hv. þingmaður erum sammála um og reyndar ýmislegt í lögreglumálum, fyrir utan kannski nauðsyn þess að efla hinar ýmsu heimildir sem oft er talað um en það er svo sem lengri umræða.
Mig langaði að spyrja hv. þingmann út í það, í ljósi orðræðu Miðflokksins í öðrum málum, hvort hann geti ekki tekið undir það með mér að það sé mikilvægt fyrir fórnarlömb mansals að óttast ekki yfirvöld þegar upp kemst um mansalið. Það er nefnilega þannig að þótt mansal tíðkist í veitingaiðnaði, ferðaþjónustu og byggingariðnaði, eins og hv. þingmaður fór ágætlega yfir, þá tíðkast það líka t.d. í kynlífsiðnaði og vímuefnaiðnaði og auðvitað eru sum fórnarlömb mansals í þeirri stöðu gagnvart útlendingalögum og dvalarleyfi að það er tiltölulega auðvelt að senda þau eitthvert burt, sem fer auðvitað eftir aðstæðum og uppruna viðkomandi einstaklings. Í slíkum aðstæðum hef ég áhyggjur af því að það sé erfiðara að koma upp um mansal og erfiðara að fá samvinnu fórnarlamba mansals þegar þau sjálf óttast yfirvöld. Jafnvel eru til dæmi þar sem fórnarlambi mansals er hótað með yfirvöldum vegna þess að viðkomandi hefur á einhvern hátt tekið þátt í einhvers konar vímuefnamisferli eða kynlífsiðnaði, t.d. birtingu á klámi eða einhverju því um líku eða er að brjóta lög um útlendinga. Þetta eru málaflokkar þar sem mér hefur ekki fundist orðræða Miðflokksins til þess fallin að draga úr ægimætti ríkisins. Þess vegna langar mig að spyrja hv. þingmann út í þetta. (Forseti hringir.) Er ekki hluti af því sem við þurfum að gera að breyta löggjöf þannig að fórnarlömb mansals þurfi ekki að óttast okkur yfirleitt?