151. löggjafarþing — 105. fundur,  2. júní 2021.

almenn hegningarlög.

550. mál
[17:34]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég er ekki að tala um áhyggjur af því að lögreglan beiti þetta fólk ofbeldi eða einhverju því um líku. Ég hef áhyggjur af því að þetta fólk óttist löggjöfina eins og búið er að setja hana niður og lögreglunni er beinlínis skylt að framfylgja líkt og öðrum stofnunum ríkisins, t.d. Útlendingastofnun. Ég ætla að rekja í ræðu á eftir fremur ógeðfellt mál frá 2013 sem skýrir þetta afskaplega vel, alveg pínlega vel, þar sem við refsuðum einstaklingi sem var fórnarlamb mansals fyrir fíkniefnamisferli, fyrir að smygla vímuefnum til landsins. Ég fer út í þá sögu hér á eftir og ætlast ekki til að hv. þingmaður svari mér um tilteknar sögur.

En ástæðan fyrir því að ég spyr er sú að án þess að það sé neitt að athuga við störf lögreglunnar eða eftirlitsaðila, reyndar sérstaklega þegar það er ekkert við þau störf að athuga, þá eru tæki í íslenskri löggjöf til þess að kúga fórnarlömb mansals með, til að mynda að hægt sé að reka þau úr landi. Miðflokkurinn hefur staðið hér í pontu og barist gegn auknu frjálslyndi í vímuefnamálum, jafnvel í neysluskammtamálum, og hefur staðið gegn því að við séum með frjálslyndari útlendingastefnu sem myndi bjóða upp á vinsamlegra viðhorf okkar, ríkisins, löggjafans, til fólks sem stendur frammi fyrir því að vera mögulega dæmt fyrir fíkniefnamisferli eða að brjóta dvalarleyfisreglur eða hafa ekki færi á því að fá hér dvalarleyfi til lengri tíma eða brjóta eitthvað eins og klámbannið á Íslandi, ef það er neytt til klámframleiðslu, bara sem dæmi. (Forseti hringir.) Í svona málaflokkum, þar sem við höfum búið til eitthvert kerfi til að takast á við vandamál sem við teljum slæm, er punktur minn sá að í baráttunni gegn mansali er mikilvægt að við séum frjálslynd (Forseti hringir.) til þess að fórnarlömb mansals óttist ekki refsingar af hálfu okkar (Forseti hringir.) fyrir að hafa tekið þátt í einhverjum verknuðum sem við höfum dæmt svo slæma að fyrir þá er byrjað að refsa.