151. löggjafarþing — 105. fundur,  2. júní 2021.

almenn hegningarlög.

550. mál
[17:39]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Herra forseti. Mig langar hér í umræðu um þetta dagskrármál að beina sjónum mínum sérstaklega að svokölluðu vinnumansali. Mig langar að nefna tvö mál. Það er annars vegar mál sem er í meðförum hér í þinginu og raunar á dagskrá síðar í dag og hins vegar mál sem snýr að stöðu flugmála og flugmanna í því umhverfi sem við komum út úr núna í kjölfar Covid-faraldursins. Það er þannig að í þessu máli er verið að færa þá þætti sem um fjallar til betri vegar en mér finnst nauðsynlegt í því sambandi að halda til haga þessum þætti, annars vegar skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra, áhættumatsskýrslu greiningardeildar frá því í maí 2019, og þeim hluta skýrslunnar sem fjallar um vinnumansal. Það er auðvitað margt annað en það sem oftast er nefnt í þessu samhengi, sem eru mál tengd vændi og síðan fíkniefnainnflutningi og tengdum þáttum, sem fellur þarna undir. Það er eins og segir í skýrslu ríkislögreglustjóra, þar sem fjallað er um vinnumarkaðsbrot, með leyfi forseta:

„Greiningardeild ríkislögreglustjóra fjallaði um hugtakið „vinnumarkaðsafbrot“ í skýrslu ársins 2017. Með því er leitast við að þýða hugtak sem viðtekið er á Norðurlöndum (n. Arbeidsmarkedskriminalitet).

Á vettvangi stéttarfélaga hefur á síðustu misserum verið leitast við að bregðast við félagslegum undirboðum og réttindabrotum á vinnumarkaði. Meðal birtingarmynda félagslegra undirboða eru: ólögleg sjálfboðaliðastarfsemi, launastuldur, ófullnægjandi ráðningasamningar, misnotkun á vinnandi fólki, brot á ákvæðum um hvíldartíma, óviðunandi aðbúnaður, misnotkun í tengslum við útleigu íbúðarhúsnæðis í eigu atvinnurekanda.“

Þetta er án nokkurs vafa ekki tæmandi listi hvað þessa upptalningu varðar en gefur okkur kannski mynd af því hversu víðfeðmt það vandamál er sem hér um ræðir.

Mig langaði í því samhengi að koma inn á tvö mál sérstaklega sem ég tel rétt að vekja athygli á. Í fyrsta lagi er það mál sem án nokkurs vafa er verið að færa til betri vegar með frumvarpi sem liggur hér fyrir og er til 2. umr. á þeim þingfundi sem nú stendur, sem er mál 690, frumvarp til laga um breytingu á lögum um farþegaflutninga og farmflutninga á landi, nr. 28/2017. Þetta eru sem sagt tímabundnir gestaflutningar og vanræksluálag. Það eru sérstaklega tímabundnir gestaflutningar sem mig langar að koma inn á í dag.

Það var viðtekin starfsemi árin eftir að ferðaþjónustan fór á flug og fram að þeim tíma að Covid-faraldurinn gekk í garð að hér var gríðarlegur fjöldi erlendra rekstraraðila fólskferðarbifreiða sem voru hér starfandi þar sem bílstjórar virtust í flestum tilvikum starfa samkvæmt bæði erlendum launakjörum, erlendum starfsskilyrðisreglum, ef einhverjar voru, og þar fram eftir götunum. Þessir aðilar, bílstjórar, virtust á löngum köflum búa í þeim rútum sem þeir keyrðu og reglulega heyrðust sögur af því að matur væri seldur úr farangursgeymslum þessara bíla, iðulega matur sem barst til landsins með rútunni í fyrstu ferð, þegar hún kom til landsins, og á löngum köflum miklar furðusögur sem af þessu bárust og hafa ekki verið reyndar. Sama á við þar sem erlendir aðilar, leiðsögumenn, voru í leyfisleysi á ferðalagi með samlanda sína þegar bifreið var tekin til skoðunar, stoppuð, af einhverjum ástæðum. Þá var því flaggað samstundis að þarna væri fjölskylda saman á ferð og þar fram eftir götunum. Með þessu hafa aðilar komið sér undan hinu íslenska regluverki og komið sér undan því að bílstjórar þessara fyrirtækja starfi á forsvaranlegum kjörum.

Þetta er atriði sem er verið að reyna að færa til betri vegar með frumvarpinu sem liggur hér fyrir og nefndaráliti sem fylgir í 2. umr. sem allir þingmenn hv. umhverfis- og samgöngunefndar skrifa undir. En að þessu máli afgreiddu, sem ég reikna nú með að klárist fyrir þinglok, er staðan samt sú að það eru fjölmörg atriði sem þarf að taka til skoðunar í þessu umhverfi til að tryggja að bæði séu starfsmannamál slíkra fyrirtækja með forsvaranlegum hætti, tryggingamál farþega og þar fram eftir götunum. Þetta færist til betri vegar með því að nú er skilgreint með hvaða hætti þessi fyrirtæki mega starfa hér og útfærslan er sú að hver flytjandi, sem sagt hver starfsleyfishafi, geti aðeins starfað í tíu daga samfellt í hverjum almanaksmánuði. Með því næst upp það markmið að raunverulega sé um tímabundna gestaflutninga að ræða en að ökutæki sé ekki hér svo misserum skipti, mögulega skipt út bílstjórum, í stöðugum undirboðum á hinum innlenda markaði þar sem innlendir rekstraraðilar þurfa að starfa undir þeim til samræmis við þá kjarasamninga sem í gildi eru og undir ákveðinni reglu hvað tryggingamál og öryggismál og fleiri tengda þætti varðar. Ég held því að þetta sé til mikilla bóta og fagna því mjög að þessi þáttur málsins sé að nást fram í því máli.

Síðan er það hitt málið sem mig langaði til að nefna í þessu samhengi, bara til að undirstrika hversu nærri okkur það er sem í daglegu tali er kallað félagslegt undirboð. Frá félagslegum undirboðum er mjög stutt yfir í einhverja þá þætti vinnumansals sem greiningardeild ríkislögreglustjóra varar við. Staðreyndin er sú að með einum eða öðrum hætti er þetta, ég ætla ekki að segja allt, á gráu svæði, auðvitað er hluti af þessu á kolsvörtu svæði, en mikið af þessu er á gráu svæði. Þar sem vilji er til þess að snúa út úr reglum og hafa réttindi af starfsfólki þá virðist finnast leið.

Hitt atriðið sem ég vildi nefna í þessari ræðu minni er áskorun átta samgönguráðherra sem var gefin út í Brussel 8. desember 2020 þar sem samgönguráðherrar Ástralíu, Belgíu, Danmerkur, Frakklands, Ítalíu, Lúxemborgar, Hollands og Portúgals taka höndum saman og skora á ríkisstjórnir Evrópulanda að gæta þess að fluggeirinn finni sig ekki í umhverfi félagslegra undirboða í kjölfar þess að Covid-faraldrinum létti. Það er auðvitað þannig, eins og við þekkjum öll, að flugfélög um allan hinn vestræna heim hafa meira og minna verið í verulegum vandræðum síðasta rúma árið vegna faraldursins. Freistnivandinn er því gríðarlegur hvað það varðar að haga málum með þeim hætti að starfsskilyrði flugáhafna séu á gráu svæði. Þessir átta samgönguráðherrar vara við félagslegum undirboðum og vísa til reglugerðar 1008/2008 í því samhengi.

Ég vil bara halda þessu til haga hér í því ljósi að þetta stendur okkur nærri. Það er engin ástæða til þess að reikna með að mál sem snúa að félagslegum undirboðum reki ekki á okkar fjörur á Íslandi þó að við teljum okkur í mörgu samhengi vera saklaus og einangruð.

Mig langar að snúa mér aftur að skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra. Þar er sérstaklega talað um ófullnægjandi ráðningarsamninga sem eru partur af þessum félagslegu undirboðum sem við þekkjum og hefur það árum saman verið sérstakt markmið launþegahreyfingarinnar, Vinnueftirlitsins og fleiri aðila að vinna gegn þeim. Það er í takt við stefnu Miðflokksins í þessum málum. Það þarf að tryggja að farið sé eftir þeim lögum og reglum sem í gildi eru vegna þess að það er ekki bara það að sá sem fer á svig við þær reglur og þau lög sem í gildi eru nái mögulega fram tímabundnum afrakstri af því heldur skekkir það alla samkeppnisstöðu. Ef samkeppnisstaða aðila á markaði er bjöguð, ég tala nú ekki um yfir lengri tíma, þá er það þannig að fyrirtækin sem eru með allt sitt á hreinu, starfa eftir þeim lögum og reglum sem í gildi eru, borga laun samkvæmt þeim samningum sem fyrirliggjandi eru og koma fram við starfsmenn sína á forsvaranlegan máta, þurfa alltaf að bera meiri kostnað til að framkvæma og sinna sömu þjónustu en þau fyrirtæki á sama markaði sem stunda félagsleg undirboð. Það er ekki í neinu samhengi skynsamlegt að styðja við slíka framgöngu og það verður að nefna hér.

Mig langar að koma stuttlega inn á umsögn Vinnueftirlitsins í tengslum við þetta mál. Skemmst er frá því að segja að Vinnueftirlitið fagnar þessu frumvarpi í umsögn sinni og þeim breytingum sem fyrirhugaðar eru á 1. mgr. 227. gr. almennra hegningarlaga og telur þær vera til bóta í málaflokknum. En áfram segir, með leyfi forseta:

„Vinnueftirlitið telur mikilvægt að uppræta mansal á íslenskum vinnumarkaði og hefur stofnunin hug á að taka þátt í þeirri vegferð með vitundarvakningu, fræðslu og þeim leiðum sem Vinnueftirlitinu er fært að leggja hönd á plóg, í samræmi við hlutverk þess.

Vinnueftirlitið telur þó vert að benda á að til þess að hægt sé að vinna enn markvissar að því markmiði að uppræta vinnumansal væri gagnlegt að skilgreina það betur en nú er gert.“

Það er það sem ég vildi benda á hér við 2. umr., að mögulega væri ástæða til að fara betur í gegnum þær skilgreiningar sem Vinnueftirlitið bendir á til þess að ná enn betur fram þeim markmiðum sem sett eru með þessari lagasetningu.

Áfram heldur umsögn Vinnumálastofnunar, með leyfi forseta:

„Ekki er gerð athugasemd við það að refsiákvæðið verði áfram eitt heildstætt og almennt ákvæði um mansal en Vinnueftirlitið vill benda á mikilvægi þess að slíkt ákvæði taki skýrlega til allra þeirra þátta sem átt gætu við, þ.m.t. allra þátta vinnumansals.

Í greinargerð frumvarpsins, á bls. 9, er hugtakið vinnumansal skilgreint og segir þar:

„Vinnumansal nær yfir nauðungarvinnu, þrælkun, þrældóm eða aðra misnotkun á vinnuafli að uppfylltum skilyrðum 1. mgr. 227. gr. a.“

Samkvæmt 1. málsl. 1. mgr. 227. gr. a. frumvarpsins er skýrlega kveðið á um nauðungarvinnu, þrælkun og þrældóm. Hins vegar kemur orðalagið „önnur misnotkun á vinnuafli“ ekki fyrir í orðalagi ákvæðisins sjálfs. Skilgreining á hugtakinu „vinnumansal“ gengur þannig lengra í skýringu ákvæðisins í greinargerð heldur en í ákvæðinu sjálfu í frumvarpinu.“

Ég vil bara benda hv. allsherjar- og menntamálanefnd á, gangi frumvarpið til nefndar milli umræðna, að skoða þetta því að skýrleikinn sem þarna er kallað eftir getur vart verið til annars en bóta gagnvart málinu í heild sinni.

Síðan segir áfram, með leyfi forseta:

„Vinnueftirlitið telur æskilegt að hugtakið vinnumansal í refsiákvæði frumvarpsins sé skýrlega skilgreint og samræmi sé milli orðalags ákvæðisins og skýringa þess í greinargerð með frumvarpinu. Vinnueftirlitið leggur því til að þetta samræmi verði tryggt og að orðalagið „önnur misnotkun á vinnuafli“ hljóti skýrari stoð í ákvæðinu og verði betur skilgreint í skýringu þess.“

Hér vísa ég þá aftur í það sem sagt er í skýrslu ríkislögreglustjóra um skipulagða brotastarfsemi frá maí 2019 þar sem segir, með leyfi forseta:

„Á vettvangi stéttarfélaga hefur á síðustu misserum verið leitast við að bregðast við félagslegum undirboðum og réttindabrotum á vinnumarkaði. Meðal birtingarmynda félagslegra undirboða eru: ólögleg sjálfboðaliðastarfsemi, launastuldur, ófullnægjandi ráðningasamningar, misnotkun á vinnandi fólki, brot á ákvæðum um hvíldartíma, óviðunandi aðbúnaður, misnotkun í tengslum við útleigu íbúðarhúsnæðis í eigu atvinnurekanda.“

Þessa þætti alla þarf að skoða heildstætt með það fyrir augum að ná fram þeim markmiðum sem lagasetningin er ætluð til og Miðflokkurinn styður við í þessu máli.

Virðulegur forseti. Ég ætla að láta þetta gott heita hvað þetta varðar í þessari ræðu minni en ítreka að gangi málið til nefndar, án þess að ég ætli að gera tillögu um það, af því ég sé að hv. framsögumaður málsins situr hér í salnum, þá verði þessar ábendingar Vinnueftirlitsins skoðaðar hvað skýrleika ákvæðisins varðar.