151. löggjafarþing — 105. fundur,  2. júní 2021.

almenn hegningarlög.

550. mál
[18:02]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég verð að viðurkenna að mér láðist að gera mig mjög skýran í fyrra andsvari, tíminn rann út og vel það. Punktur minn er þessi: Í samfélagi sem er frjálsara er erfiðara að beita ríkinu til þess að kúga fólk. Því meira sem ríkið tekur utan um ólíkar tegundir af fólki sem gerir ólíka hluti, jafnvel ekkert endilega voðalega æskilega hluti, því meira sem ríkið er umburðarlynt gagnvart því, því minna er hægt að nota það að við séum ólík og höfum ólíkar venjur, lítum öðruvísi út og högum okkur öðruvísi og tölum öðruvísi og gerum hlutina öðruvísi sem vopn gegn þeim sömu einstaklingum.

Eitt svona einfalt dæmi er t.d. vímuefnamál. Í mörgum menningarheimum eru t.d. kannabisefni með svipaðan stall og áfengi hefur á Íslandi, það er ekki endilega hollt, það er ekki gott að þú notir það í óhófi en það er þar, á meðan áfengi er talið eitthvað eins og Íslendingar myndu upp til hópa líta á heróín, sem er reyndar ekki það ósanngjarn samanburður ef út í það er farið, áfengi er algjört eitur. En punktur minn er sá að það er fólk á Íslandi sem er öðruvísi og áttar sig kannski ekki á því þegar það kemur hingað að það getur í alvörunni leitt það af sér að því sé vísað aftur til heimaríkisins ef það er ekki með pappírana í lagi. Hingað kemur fólk sem finnst það í alvörunni, frá hjartans rótum, ekki vera tiltökumál að nota kannabisefni, á sama hátt og Íslendingum finnst það ekki almennt tiltökumál að nota áfengi, í einhverju smávægilegu magni alla vega. Á meðan við erum grimm eða skilningslaus gagnvart slíku, almennt, ég er bara að taka tvö dæmi, en almennt, þá er auðveldara fyrir fólk sem er með annað fólk í vinnu að breyta þeim aðstæðum í kúgunaraðstæður. Punktur minn er sá að frelsið er gott. Það er gott til þess að brjóta upp kúgunarsambönd á milli einstaklinga eða milli fyrirtækja og einstaklinga. (Forseti hringir.) Ég nefni þetta vegna þess að ég hef heyrt þá orðræðu hv. þingmanna Miðflokksins að vera almennt í andstöðu við aukið frjálslyndi. (Forseti hringir.) En ég vil meina að samhengi sé á milli frjálslyndis sem ríkið býður upp á og kúgunarsambandsins sem getur orðið til í samfélaginu í kjölfarið.

(Forseti (ÞorS): Forseti gerir sitt besta sitt til að vera þolinmóður yfir tímanotkun þingmanna en verður það ekki mikið lengur.)