151. löggjafarþing — 105. fundur,  2. júní 2021.

almenn hegningarlög.

550. mál
[18:31]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það eru engin rök fyrir málstað að einhver annar sé sammála manni. Það hafa alveg verið haldnar ræður um að þessi eða hinn hópurinn sé hvergi velkominn í heiminum og þess vegna sé sá hópur óvelkominn hér líka. Þær ræður hafa ekki verið haldnar af mönnum sem ég og hv. þingmaður myndum endilega hafa mikið dálæti á, bara svo ég segi það fyrir hönd hv. þingmanns. Ég tel nú líklegt að hann myndi taka undir með mér varðandi það.

Hv. þingmaður spyr: Hvernig á að hjálpa fólki sem er á flótta, þessum milljónum sem eru á flótta? Ja, ég myndi segja: Kannski með því að leyfa þessu fólki að vera til einhvers staðar. Þá svarar hv. þingmaður kannski, og ég vona að ég sé ekki að leggja honum orð í munn ranglega, en ég hef dregið þá ályktun af orðræðu hv. þingmann Miðflokksins að þá ættum við að leita til kvótaflóttamannaaðstoðarinnar á vegum Sameinuðu þjóðanna, sem tekur mörg ár. Hún getur boðið fólki að flytja til lands í aðstæður sem það telur sig ekki geta búið við. Þá byrjar maður aftur neðst í röðinni. Það er stórmál að vera á flótta.

Það að einhverjar stefnubreytingar hafi átt sér stað á Norðurlöndunum eru einfaldlega engin rök. Sömuleiðis er það ekki þannig að ríkissjóður sé einhvern veginn að liðast í sundur vegna álags vegna hælisleitenda. Það er bara ekki þannig. Það fer meira fé til þjóðkirkjunnar á hverju ári en í hælisleitendamálin, þónokkuð mikið meira fé, næstum því tvöfalt meira, virðulegi forseti. En ekki hefur hv. þingmaður áhyggjur af því og eðlilega ekki vegna þess að það er ekkert að sliga ríkissjóð. Allt of mikið fé, við erum báðir sammála um það. En hv. þingmaður gerir meira úr vandanum en tilefni er til. Þó er það auðvitað alveg rétt að við höfum takmarkað fé en við getum alveg tekið við fleirum. Við þurfum ekki að taka við öllum, ég hef ekki heyrt neinn hérna stinga upp á því. En hv. þingmenn Miðflokksins segja: Við eigum að taka við færra fólki. Ekki taka við örlítið fleirum eða sama fjölda, nei, færra fólki. Það er orðræða Miðflokksins, virðulegur forseti. Höfum það á hreinu.