151. löggjafarþing — 105. fundur,  2. júní 2021.

almenn hegningarlög.

550. mál
[18:33]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil nú bara segja að ég held að það fari best á því að Miðflokksmenn lýsir sínu stefnumiði sjálfir með sínum eigin orðum. Ég hlýt að þakka hv. þingmanni fyrir kennslustund í rökfræði en ég beitti óvart ekki þeirri aðferð sem hann sagði mig hafa gert. En ég ætla að segja að ég get tekið undir með hv. þingmanni að einu leyti, þ.e. þegar hann vísar til þeirra vandkvæða og vandamála sem risið geta upp í tengslum við kvótaflóttamenn. Ég geri ráð fyrir því að hann þekki þar svolítið til.

En hvernig eigum við að beita okkur? Ég ætla að leyfa mér að vísa t.d. til dönsku ríkisstjórnarinnar, sem er ríkisstjórn jafnaðarmanna í Danmörku, eins og menn þekkja. Þar er lögð á það mikil áhersla af hálfu þeirrar ríkisstjórnar að leitast við að hjálpa fólki á heimaslóð eða sem næst heimaslóð. Um þetta eru skrifaðar greinar og fluttar ræður af þeirra hálfu. Ég hef leitast við hér í nokkrum greinum og ræðum að fjalla um þá stefnubreytingu sem er núna greinilega orðin í Danmörku. En dönsku jafnaðarmennirnir eru ekkert einir á ferð. Þeirra stefna nýtur mjög almenns stuðnings, bæði á pólitískum vettvangi og meðal þjóðarinnar. Ég ætla bara að segja í allri vinsemd við hv. þingmann að hann getur ekki látið eins og hann sjái ekki eða taki ekki eftir þeirri stefnubreytingu sem orðin er á Norðurlöndunum. Hún er í Danmörku, hún er í Noregi og hún er annars staðar á Norðurlöndum, meira að segja í Svíþjóð, herra forseti. (Forseti hringir.) Við munum auðvitað áfram halda áfram að fjalla um þessa stefnubreytingu (Forseti hringir.) og leitast við að hlusta og læra af því sem nágrannaþjóðirnar hafa reynt og það sem þær eru núna að reyna að gera til að bæta (Forseti hringir.) fyrir þann skaða sem orðið hefur og til þess að fylgja árangursríkari stefnu (Forseti hringir.) en þeim hefur tekist hingað til.

(Forseti (BLG): Forseti biður hv. þingmenn um að gæta að ræðutíma.)