almenn hegningarlög.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna, það er alltaf áhugavert að hlusta á sjónarmið hans. Það sem ég vildi koma aðeins inn á er að tilgangurinn með þessum breytingum á hegningarlögunum, ákvæði 227. gr., er að reyna að sporna við mansali og vera þá meira í samræmi við alþjóðasamninga sem gerðir hafa verið í þeim efnum. En svo er spurningin þessi: Kemur þessi lagabreyting ein og sér til með að breyta stöðunni? Kemur hún til með að fækka þeim tilvikum þar sem mansal á í hlut? Því að þolendur í þessum efnum sýna bæði yfirvöldum og þeim sem bjóða aðstoð mikið vantraust. Það eru eðlileg viðbrögð af hálfu þessara einstaklinga sem eru í einhverjum tilfellum ginntir í mansal, hvort sem það er í byggingarvinnu eða vændi eða hverju sem það er, og hafa neikvæða reynslu af samskiptum við yfirvöld. Það kemur fram í skýrslu sem ríkislögreglustjóri gerði árið 2010. Það sem mig langaði að koma inn á við hv. þingmann er hvernig hann sér fyrir sér að við getum unnið í þessum málum. Hér er lagabreyting sem er skref í rétta átt. En hvernig getum við unnið í þessum málum þannig að það sé auðveldara að greina mansal og fá viðkomandi fórnarlömb til að vinna með stjórnvöldum (Forseti hringir.) og reyna að uppræta þessa mansalsaðila, gerendurna í þessum erfiðu og slæmu málum?