almenn hegningarlög.
Virðulegur forseti. Hv. þingmaður beindi ekki beinlínis til mín spurningu en mér þykir samt vænt um að svara þessu. Nýlega heyrði ég á hinni rómuðu stöð BBC World Service frásögn manns frá Norður-Kóreu sem hafði flúið til Suður-Kóreu. Frásögn hans var sú sama og er yfirleitt í þeim aðstæðum, Suður-Kóreubúar koma svolítið skringilega fram við systkini sín úr norðrinu. Það hefur alltaf valdið mér ákveðnu hugarangri. Ég velti þessu svolítið fyrir mér og fyndist það skrýtið ef ég byggi í ofboðslega frjálsu samfélagi en svo væri annað samfélag hinum megin við mjög þunn landamæri þar sem væri sama þjóðin með sömu söguna þar til tiltölulega nýlega, sama tungumálið og væri í ógeðslegum aðstæðum. Og fólk flýði þær aðstæður og kæmi inn í samfélag sem væri í meginatriðum heilbrigt en viðtökurnar væru ekki vingjarnlegar og ekki væri tekið vel á móti þessum systkinum okkar.
Nú búum við sem betur fer ekki við einhvers konar Norður-Kóreu/Suður-Kóreu-ástand hvað varðar Ísland en það eru hins vegar systkini okkar sem koma úr kúgunaraðstæðum, sem tala skringilega að okkar mati, þekkja kannski ekki sömu hluti og við, eru með annan reynsluheim og annars konar framkomu og aðrar venjur og aðra siði. Mér finnst ofboðslega mikilvægt, einmitt í samfélagslegum skilningi, að við sýnum því umburðarlyndi vegna þess að eina leiðin til að frelsa fólk úr slíkri áþján er að bjóða það velkomið í eitthvað betra.
(Forseti (BLG): Forseti biðst afsökunar á því að klukkan stilltist ekki á eina mínútu. (Gripið fram í.) Það þarf ekki að spyrja spurningar í andsvari, til að hafa það á hreinu.)